Staðfesti nýja stefnu í áfengis- og vímuvarnamálum

Alma D. Möller heilbrigðisráðherra.

Alma D. Möller heilbrigðisráðherra hefur staðfest nýja stefnu í áfengis- og vímuvarnamálum til ársins 2035, að því er fram kemur í nýrri tilkynningu á vef Stjórnarráðsins.

„Megináherslur stefnunnar felast í því að efla forvarnir og snemmtæk inngrip, bæta aðgengi að meðferð, endurhæfingu og skaðaminnkandi þjónustu og styrkja stuðning við aðstandendur og börn fólks með vímuefnavanda,“ segir í tilkynningunni.

Markmiðið að draga úr skaða

Þá er markmiðið að draga úr skaða af völdum áfengis og annarra vímuefna og tryggja fólki jafnt aðgengi að fjölbreyttri þjónustu sem mætir þörfum þess.

„Lýðheilsa, gagnreynd þekking og virðing fyrir mannréttindum eru leiðarljós stefnunnar.“

Var stefnan unnin af starfshópi heilbrigðisráðherra sem falið var að móta heildarstefnu í áfengis- og vímuvörnum, en eldri stefna á þessu sviði var frá árinu 2013 og hafi því verið tímabært að endurskoða hana í ljósi margvíslegra breytinga á undanförnum árum.

„Jafnt samfélagslegra, breytinga á viðhorfum til áfengis- og vímuefnavanda og ekki síst þekkingar á sviði forvarna og meðferðar.“

Starfshópurinn sem vann stefnuna að loknum skilafundi með heilbrigðisráðherra.

Starfshópurinn sem vann stefnuna að loknum skilafundi með heilbrigðisráðherra. Ljósmynd/Stjórnarráðið

Tengsl við skaðaminnkun og geðheilbrigðismálastefnu

Verður framkvæmd stefnunnar útfærð í fimm ára aðgerðaáætlun, en meðal verkefna er að skýra ábyrgð þjónustuveitenda, efla menntun og nýliðun starfsfólks, samþætta heilbrigðis- og félagsþjónustu og bæta gagnasöfnun og árangursmat.

„Einnig er stefnt að samhæfðu mati á þjónustuþörf og miðlægum biðlista. Stýrihópur um áfengis- og vímuefnameðferðarkerfið leiðir þá vinnu í samstarfi við þjónustuveitendur, notendur og aðra hagaðila. Þar verður verkefnum forgangsraðað og ábyrgð, tímasetningar, mælikvarðar og kostnaður skilgreind.“

Einnig kemur fram að stefnan tengist fyrirliggjandi stefnu og aðgerðaáætlun stjórnvalda í skaðaminnkun og sömuleiðis stefnu stjórnvalda í geðheilbrigðismálum, enda sé algengt að geð- og áfengis- eða annar vímuefnavandi fari saman.

内容来自 Mbl.is - Innlendar fréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅