Lúxus fyrir allar nætur
Mýktin er eitt það fyrsta sem fólk tekur eftir við nýju KOSY-bambusrúmfötin en falleg eru þau líka. Ljósmynd/Aðsend
Að skríða undir sæng eftir langan dag getur verið ein notalegasta stund dagsins. Þá skiptir áferð rúmfatanna ekki síður máli en liturinn sem varð fyrir valinu enda fátt á heimilinu sem liggur jafnþétt við húðina í jafnlangan tíma.
Svava Hólmarsdóttir verslunarstjóri Dorma segir mýktina vera það fyrsta sem fólk taki eftir við nýju KOSY-bambusrúmfötin. Sjálf er hún þegar búin að kaupa sér grænt sett og hefur sjaldan sofið betur.
„Þetta er svona efni sem maður vill ósjálfrátt strjúka hendinni yfir. Það er slétt, silkimjúkt og notalega svalt viðkomu. Rúmfötin falla líka fallega og gefa rúminu fágað yfirbragð. En það besta er auðvitað að skríða undir sængina og finna áferðina við húðina.“
Dorma er nýlega farið að flytja rúmfötin inn og segir Svava fyrstu sendinguna komna í verslunina. Hún hefur sjálf prófað þau og þarf ekki að hugsa sig lengi um þegar hún er spurð hvernig reynslan hafi verið.
„Þetta er algjör draumur. Bara mýktin og þessi svala áferð, þetta er bara lúxus á hverri nóttu.“
Fyrsta sendingin af KOSY-bambusrúmfötunum er komin í Dorma og miklar líkur á að þetta verði vinsælasta jólagjöfin í ár. Ljósmynd/Aðsend
Sérstaklega góð fyrir þá sem hitna á nóttinni
Svava segir svölu viðkomuna hafa komið sér sérstaklega vel þegar henni verður heitt á nóttunni. Í samtalinu berast hitakóf á breytingaskeiði í tal og þar talar hún af eigin reynslu.
„Þetta er að bjarga mér í hitakófum,“ segir hún.
Hún bendir á að fólk hafi ólíkar óskir þegar kemur að rúmfötum. Þau sem kunna vel við svala viðkomu og loftgóð rúmföt séu meðal þeirra sem geti fundið sig í efninu.
„Lyocell er rakadrægt efni og getur tekið upp og losað raka. Það hefur áhrif á hversu þægileg rúmfötin eru við húðina. KOSY-rúmfötin anda vel og eru svöl viðkomu sem getur hentað vel þeim sem verður gjarnan heitt á nóttunni.“
Mjúkar trefjar úr bambus
Bambus er líklega ekki það fyrsta sem kemur upp í hugann þegar hugsað er um mjúkt sængurver. Heitið bambuslyocell vísar hins vegar bæði til hráefnisins og vinnsluaðferðarinnar. Bambusinn er upphafspunkturinn en fer í gegnum vinnslu áður en úr honum verða trefjar sem hægt er að nota í vefnað.
„Bambusinn er hráefnið sem sellulósinn, eða plöntutrefjaefnið, kemur úr. Hann er síðan unninn í fínar textíltrefjar með lyocell-aðferð. Það er því ekki bambusplantan sjálf sem er ofin í sængurverið heldur mjúkar trefjar sem eru unnar úr henni,“ segir Svava og líkir áferðinni við silki.
Mýktin er því mikil og Svala segir þráðaþéttleikann líka mikilvægan en rúmfötin eru með 400 þráða þéttleika.
„Þráðaþéttleiki segir til um fjölda þráða í vefnaðinum, langsum og þversum á hverja fertommu. Talan ein segir þó ekki alla söguna; trefjarnar og vefnaðurinn skipta líka máli. Hér vinnur þetta saman að sléttri og silkimjúkri áferð.“
Það er líka hægt að fá lök og aukakoddaver í KOSY-línunni og það er óneitanlega fallegt að hafa allt í sama lit, eða jafnvel einhverja kodda í öðrum lit eins og hér má sjá. Ljósmynd/Aðsend
Grænt varð fyrir valinu
Sængurverin fást í átta litum og í línunni eru einnig lök og auka koddaver. Svava valdi grænt fyrir sitt svefnherbergi en segir hægt að fara ólíkar leiðir í litasamsetningum.
„Það er hægt að skapa bæði bjarta, látlausa heild og hlýlega stemningu með jarðlitum. Einnig fást Kosy-lök og aukakoddaver svo fólk getur leikið sér með samsetningar. Stundum þarf ekki meira en ný rúmföt til að gefa svefnherberginu nýjan svip.“
Aðspurð um hagnýt atriði nefnir hún rennilásana sem eru bæði á sængur- og koddaverunum. Rúmfötin má svo þvo við 40 gráður.
„Það er einfalt og þægilegt þegar skipt er á rúminu og heldur opinu snyrtilega lokuðu. Svona smáatriði skipta líka máli í vöru sem maður notar á hverjum degi.“
Að mati Svövu eiga rúmfötin skilið sömu athygli og annað sem valið er inn á heimilið. Útlitið hafi sitt að segja en það sé ekki síður áferðin sem fylgi fólki inn í kvöldið.
„Við vöndum valið á svo mörgu á heimilinu og rúmfötin mega alveg fá sinn sess. Þau eru jú það sem við finnum við húðina á hverri nóttu.“
内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗



