Vantar upplýsingar ef til stríðs kemur á Íslandi
Varðmenn Íslands hvetja landsmenn til að lesa bæklinginn og koma sér upp birgðum til að minnsta kosti þriggja daga. mbl.is/Eggert Jóhannesson
Samtökin Varðmenn Íslands segja nýjan bækling almannavarna vanta leiðbeiningar ef til stríðs kemur á Íslandi.
Þeir fagna þó útgáfu bæklingsins, sem ber heitið Verum viðbúin, og þakka almannavörnum, Rauða krossinum og björgunarsveitum landsins fyrir framtakið.
Hvetja þeir landsmenn til að lesa hann og koma sér upp birgðum til að minnsta kosti þriggja daga.
Setja öryggi og framtíð Íslands í forgang
Á heimasíðu Varðmanna segir að ætlun samtakanna sé að leggja grunn að hreyfingu sem setji öryggi og framtíð Íslands í forgang. Þá segjast þeir undirbúa stofnun íslensks hers.
Þá benda þeir á að nágrannaþjóðir Íslands miða við að landsmenn þeirra eigi birgðir fyrir eina viku en Ísland miðar aðeins við þrjá daga. Að auki telja þeir vöntun á skýrri framsetningu á magni vatns, lyfja og reiðufjár sem hvert heimili þarf.
Gáfu þeir út leiðarvísi, Ef hættuástand eða stríð skellur á, í haust sem fjallar um þessi atriði og er öllum opinn. Þá bjóða þeir almannavörnum að nýta efnið í næstu útgáfu þeirra.
Ríki ákveðin bannhelgi
Daði Freyr Ólafsson framkvæmdastjóri samtakanna segir ætlunina vera að benda á hnökra bæklingsins og segir skort vera á upplýsingum sem meðal annars nágrannaþjóðir Íslands hafa í sínu útgefna efni.
Þá bendir hann á að í bæklingi Varðmanna sé að finna upptalningu á þeim hlutum sem gott er að hafa til taks ef til þess kemur. „Það er meðal annars sjúkrakassinn, reiðufé, lyf, hreinlætisvörur, hlý föt, vasaljós og útvarp,“ segir Daði í samtali við mbl.is.
Daði segir það geta reynst fólki erfitt að hugsa um þessi mál og að ákveðin bannhelgi ríki um þetta viðfangsefni.
Jafnframt segir hann ætlunina með þessu ekki vera að kynda undir stofnun íslensks hers heldur að Íslendingar viti hvernig þeir geti bjargað sér þar til hjálp berst að utan.
„Það er ekki til mikið af birgðum í landinu til þess að reka samfélagið eins og það er í dag. Það þyrfti að taka upp skömmtun birgða strax á morgun.“
内容来自 Mbl.is - Innlendar fréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗

