„Mun öflugra en ég hef upplifað á Íslandi“

Sigurður Ragnar Eyjólfsson.

Sigurður Ragnar Eyjólfsson. Ljósmynd/Hjálmar Jóhan Juul

Sjálfboðavinnan í kringum færeyska fótboltann hefur komið Sigurði Ragnari Eyjólfssyni mikið á óvart en hann gerði NSÍ frá Runavík að Færeyjarmeisturum á dögunum.

Sigurður, sem er 52 ára gamall, skrifaði undir eins árs samning við félagið í desember á síðasta ári og flutti til Færeyja í janúar.

Félagið tryggði sér meistaratitilinn á dögunum með jafntefli gegn HB í Runavík í næstsíðustu umferð deildarinnar en þetta er í annað sinn sem NSÍ verður meistari og í fyrsta sinn í 19 ár.

Spilað af fingrum fram

„Þetta er mjög svipað hérna og heima á Íslandi, allir leikmenn eru í vinnu og svo er æfing seinni partinn, hjá okkur voru þær oftast um 17:30 leytið og ég er eini starfsmaður félagsins sem er í fullri vinnu,“ sagði Sigurður Ragnar í samtali við mbl.is.

„Aðstoðarþjálfarinn er í hlutastarfi og markmannsþjálfarinn okkar kemur þrisvar sinnum í viku. Styrktarþjálfarinn mætir þegar hann getur og sjúkraþjálfarinn líka. Teymið er ekki stærra og við þurfum aðeins að spila þetta af fingrum fram.

Það er enginn starfandi framkvæmdastjóri heldur. Hann er bara í sjálfboðavinnu sem og yfirmaður knattspyrnumála. Það er ofboðslega öflugt sjálfboðaliðastarfið hérna og mun öflugra en ég hef upplifað á Íslandi. Það er fólk hérna sem er tilbúið að gera bókstaflega allt fyrir félagið,“ sagði Sigurður Ragnar.

Ítarlegt viðtal við Sigurð Ragnar má sjá á íþróttasíðum Morgunblaðsins fimmtudaginn 29. október eða með því að smella hér.

内容来自 Mbl.is - Íþróttir - Fótbolti,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅