Steinunn og Jóhann fundu leiðina aftur til hvors annars eftir fjögur ár: „Ég hugsaði: Sjáum hvað hann hefur að segja“

Hver ástarsaga er einstök og þar með talin saga þeirra Steinunnar Óskar Valsdóttur og Jóhanns Helga Sveinssonar. Þau eru gott dæmi um „rétta manneskju á röngum tíma“. Þau voru saman í tvö ár og eignuðust dóttur áður en leiðir þeirra skildu. En Amor hafði önnur áform og beindi örinni aftur að þeim.

Við ræddum við Steinunni um sambandið, hvernig þau byrjuðu saman aftur, hvað hafði breyst og hvernig lífið er í dag. Þau eru bæði virk á samfélagsmiðlum og taka gjarnan upp efni saman, enda Jóhann vel heppnaður „Instagram eiginmaður“ að sögn Steinunnar.

Steinunn Ósk er áhrifavaldur og samfélagsmiðlastjóri Blue Car Rental. Jóhann Helgi er markaðsstjóri hjá Þrótti og framkvæmdastjóri Rey Cup.

Steinunn og Jóhann kynntust fyrst árið 2019, eins og hefðbundinni nútímaástarsögu, í gegnum Tinder. Fyrir átti Steinunn tvíburadrengi sem fermdust í vor.

Þau eignuðust dóttur 2020, Jónínu. Leiðir þeirra skildu árið 2021 og við tók vinsamlegt foreldrasamstarf næstu árin.

Fjögur ár liðu

Það var Jóhann sem átti frumkvæðið að því að kveikja neistann aftur að þeirra ástarbáli. „Hann átti það bara alveg skuldlaust,“ segir Steinunn.

„Hann bauð mér á stefnumót á afmælinu mínu í fyrra. Við vorum náttúrulega oft í samskiptum vegna dóttur okkar og á þessum tímapunkti vorum við bæði einhleyp. Hann sendi á mig og bauð mér á deit sem hann hafði lofað að fara með mig á þegar við vorum saman, en það gerðist aldrei.“

Á þessum tíma hélt Steinunn úti hlaðvarpinu Skipulagt Chaos. Jóhann var að hlusta á þátt – sem eitt og sér er vísbending um hvar hugur hans var – og var eitthvað sem hún sagði í þættinum sem gerði Jóhanni ljóst að hann yrði að láta vaða ef hann vildi endurnýja ástartengslin.

„Hann sagðist hafa hlustað á einn þátt hjá mér þar sem við vorum að tala eitthvað um að það sé ein kona í lífi manns sem maður myndi gera allt fyrir. Ég man ekki alveg hvaða þáttur það var en hann tengdi þetta við mig,“ segir Steinunn.

Af hverju ekki?

Steinunn sagði já við stefnumótinu en viðurkennir að hún hafi verið smá efins, ekki beint hoppandi um af spenningi.

„En ég hugsaði: Af hverju ekki? Ef það væri einhver sem ég myndi vilja eyða afmælinu mínu með þá væri það auðvitað maðurinn sem ég á barn með. Þannig ég bara svona: Ókei, ég hef engu að tapa, sjáum hvað hann hefur að segja.“

Þau fóru í Bláa lónið og borðuðu síðan á veitingastaðnum þar.

Stuttu síðar fóru þau í bústað saman og öll púslin féllu á sinn stað. „Þetta er manneskja sem ég þekki og mér þykir vænt um, mér leið strax ótrúlega þægilega með honum.“

Það gekk vel að samrýna fjölskylduna aftur. Börnin voru spennt að heyra fréttirnar og flutti Steinunn inn til Jóhanns, á heimilið sem þau deildu áður.

„Mér leið ótrúlega vel að koma þar aftur inn. Hann var líka búinn að sanna fyrir mér að hann væri tilbúinn að gera allt fyrir mig og vera bara bestur í heimi.“

Steinunn segir að það hafi ekki verið einhver ein ástæða fyrir því að þau hafi hætt saman, kannski frekar dæmi um rétta manneskju á röngum tíma. „Það var bara ógeðslega mikið álag á okkur báðum og við vorum kannski ekki bestu útgáfurnar af okkur sjálfum, bæði tvö. En þegar við fórum í sundur unnum við bæði mikið í okkur og breyttum lífsstílnum okkar, og það gerði alveg mjög mikið fyrir okkur tvö.“

Það er hægt að kenna gömlum hundi að sitja

Steinunn fór í gegnum mikla sjálfsvinnu á þessum tíma. „Ég hætti að drekka, en það var aldrei vesen í okkar sambandi, en ég gerði líka alls konar hluti til að láta mér líða betur andlega. Ég fékk rosa mikið fæðingarþunglyndi þegar ég eignaðist Jónínu og það hafði mikil áhrif á mig, hvernig karakter ég var. Við vorum bæði undir miklu álagi, með ungabarn og ég held líka að Covid hafi sett strik í reikninginn.“

Steinunn segir að það hafi komið henni á óvart að fólk geti breyst. „Maður heldur að sumir hlutir breytist aldrei, en fólk getur bætt sig og orðið betra en það var.“

Gaman að vinna saman

Steinunn hefur verið á samfélagsmiðlum í áratug og getið sér gott orð sem áhrifavaldur. Hún nýtur vinsælda á Instagram og TikTok og hélt áður úti vinsælu hlaðvarpi ásamt Selmu Soffíu, Skipulagt Chaos. Steinunn er einnig tíður gestur á TikTok-síðu Jóhanns, sem er að hasla sér völl á miðlinum. Hann heldur einnig úti hlaðvarpinu Vaktinn, ásamt Birki Björnssyni. 

Þau hafa einnig sinnt nokkrum verkefnum saman fyrir samfélagsmiðla og segir Steinunn það ganga vel að vinna saman. „Við erum með mjög svipuð áhugamál og við hvetjum hvort annað áfram. Það er ótrúlega gaman, það er gaman að vera með Jóa og hann hefur áhuga á því að skapa efni fyrir samfélagsmiðla eins og ég. Ég er með góðan „Instagram eiginmann“ hérna,“ segir hún kímin.

Steinunn hefur tekið eftir því að Jóhann er mikið uppáhald hjá netverjum. „Það er fyndið hvað allir tala um TikTok-síðuna hans Jóa, en það talar enginn um mína,“ segir hún hlæjandi og bætir við: „Fólk hefur rosa gaman af Jóa en fólk hefur ekki eins gaman af mér.“

Hún segist þó hafa mjög gaman af þessu öllu saman. „Því Jói er mjög hlédrægur, það glymur ekki hæst í honum í partýi, þannig það kemur oft fólki á óvart þegar það kemst að því hvað hann er fyndinn. Þá segi ég alltaf: Af hverju heldurðu að ég sé með honum?“ segir hún kímin.

内容来自 DV.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅