Albert í „furðulegri“ stöðu

Helgi Fannar og Hörður Snævar gerðu upp helstu fréttir og leiki í Íþróttavikunni á DV/433.

Það styttist í endurkomu Albert Guðmundssonar, þó hann nái ekki næstu landsleikjum vegna meiðsla.

„Lazio tekur örugglega bara enga sénsa með hann. Þetta eru leiðindameiðsli og þeir vilja frekar að hann sé í toppmálum eftir landsleikjahlé, í stað þess að ýta á hann núna svo KSÍ geti valið hann. Lazio er líka að gera geggjaða hluta í ítalska boltanum,“ sagði Hörður.

Albert gekk í raðir Lazio í sumar en þrátt fyrir gott gengi liðsins innan vallar mæta stuðningsmenn lítið á völlinn.

„Þeir eru góðir innan vallar en það mætir enginn á völlinn,“ sagði Helgi. „Já þetta er skrýtin staða sem liðið er í,“ sagði Hörður.

Þátturinn er í spilaranum.

内容来自 DV.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅