Sagður stefna á forsetaframboð
Ron DeSantis, ríkisstjóri Flórída í Bandaríkjunum, undirbýr framboð í forvali Repúblikanaflokksins fyrir forsetakosningarnar 2028.
Þetta hefur Washington Post eftir þremur heimildarmönnum sem þekkja til áforma hans.
Flórída var eitt fárra ríkja þar sem Repúblikanar héldu velli þegar Demókratar unnu stórsigur í þingkosningunum síðastliðinn þriðjudag.
Trúverðuleiki DeSantis meiri en annarra
„Sú staðreynd að bláa bylgjan náði ekki yfir Flórída veitir DeSantis meiri trúverðugleika en nokkrum öðrum nú þegar baráttan fyrir 2028 er að hefjast,“ segir Dan Eberhart, forstjóri í orkugeiranum sem lengi hefur styrkt Repúblikanaflokkinn.
Eberhart var einn talsmanna DeSantis þegar hann sóttist eftir útnefningu flokksins árið 2024, án árangurs.
Að sögn heimildarmanns sem stendur DeSantis nærri hefur hann þegar leitað til að minnsta kosti eins þekkts kosningaráðgjafa um að starfa fyrir framboðið.
Pólitískur loftsteinn
Bandamenn ríkisstjórans segja hann sjá sér leik á borði eftir að kjósendur höfnuðu stefnu Trumps með afgerandi hætti. DeSantis sagði sjálfur að kosningarnar hefðu verið nær því að þurrka Repúblikanaflokkinn út.
„Þetta var eins og pólitískur loftsteinn sem skall á öllum Bandaríkjunum, bláum ríkjum, rauðum ríkjum og öllu þar á milli,“ sagði hann á blaðamannafundi í Tallahassee.
Fram að kosningunum á þriðjudag þótti JD Vance varaforseti líklegasti arftaki Donalds Trumps og sigurstranglegastur í baráttunni fyrir 2028.
Eftir afhroð Repúblikana og þá höfnun sem stefna stjórnarinnar hlaut er sú staða nú í uppnámi.
内容来自 Mbl.is - Erlendar fréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗
