„Ég sótti um, komst inn og skellti mér út“

Embla Eir Kristinsdóttir býr í Prag þar sem hún stundar nám. Ljósmynd/Aðsend

Hin 24 ára gamla Embla Eir Kristinsdóttir flutti full tilhlökkunar til Tékklands til að sækja sér gráðu í hreyfimyndagerð. Hún segir að ferlið að flytja og búa í útlöndum hafi verið bæði skemmtilegt og þroskandi en það má segja að hún hafi lært ótal margt á þessum tíma, bæði innan og utan skóla. Hún stefnir á útskrift vorið 2027.

„Þegar ég flutti til Prag þá hafði ég aldrei komið til Tékklands áður. Ég er að ná mér í BA-gráðu í hreyfimyndagerð, eða animation eins og það kallast á ensku, í einum af Listaháskólunum sem eru í borginni.

Ef ég á að vera alveg hreinskilin, þá hafði ég aldrei heyrt um Prag, en námið var það sem heillaði mig,“ segir Embla Eir en hún hafði áður lokið stúdentsprófi af myndlistarbraut og tveggja ára myndlistarnámi á Íslandi.

„Það eru margir skólar sem bjóða upp á nám í grafískri hönnun en mig langaði að sækja mér menntun í hreyfimyndagerð. Ég fann tvo skóla sem mér leist vel á, sem sagt buðu upp á það sem ég var spennt fyrir. Annar skólinn er í Danmörku og svo er það þessi sem ég er í. Hann heitir PSCC eða Prague School of Creative Communication. Ég sótti um, komst inn og skellti mér út.“

Í Prag er skemmtilegt að skoða sig um, þar er hægt að sjá margar gamlar og flottar byggingar. Ljósmynd/Aðsend

Hvernig var að flytja til Prag? 

„Mér fannst svolítið krefjandi að flytja út. Ég hafði alla tíð búið hjá foreldrum mínum svo að þetta var mikil lífsreynsla. Að fara að heiman er eitt en að flytja úr landi er aðeins meira stökk. Ég fann samt ekki fyrir hræðslu eða stressi, aðallega bara fyrir spenningi sem kom mér sjálfri á óvart enda var ég vön að fá heimþrá sem krakki.
Þarna var ég að fara út í hinn stóra heim og skildi vinahópinn og fjölskylduna eftir á Íslandi og þekkti ekki nokkurn mann,“ segir hún.

Fyrir nokkrum árum hafði Embla Eir varla heyrt um borgina sem hún kallar nú heimili sitt. Samsett mynd

Þarf ekki að vinna úti

„Flutningurinn sjálfur var svo sem ekkert mál, ég passaði bara að koma öllu sem ég nauðsynlega þurfti í töskur, annað vissi ég að ég gæti bara keypt úti. Að finna íbúð til að búa í var stærra verkefni. Mig langaði alls ekki að búa með ókunnugum eða að deila baðherbergi og eldhúsi með öðrum. Ég var því rosa glöð þegar ég fann, með hjálp foreldra minna, flotta og nýlega heimavist sem uppfyllti allar mínar óskir. Íbúðarkjarninn heitir The Fizz og er staðsettur í skemmtilegu hverfi rétt fyrir utan miðbæ Prag.“

En hvernig ferðu að því að fjármagna námið? 

„Það dugar fyrir mig að koma heim á sumrin og jólin að vinna til að hafa efni á því að lifa veturinn svo ég þurfi ekki vinnu hérna úti til að halda mér á floti. Ég var þó lengi búin að leggja fyrir í sjóð fyrir námi erlendis og það hefur hjálpað mér mjög mikið.“

Hvernig er nám í hreyfimyndagerð?

„Námið sjálft er búið að vera krefjandi. Sumt kemur mjög náttúrulega og annað ekki. Þá eru kennsluaðferðir og skipulag svolítið öðruvísi en ég er vön en maður lærir bara á það. Þó að námið sé á ensku er ætlast til að ná smá grunni í tékknesku sem er kennd í skólanum. Tungumálið er ekki einfalt og ég reyni bara mitt besta.

Hluti af námi mínu er að skila starfsnámi með skólanum og var ég svo heppin að komast að hjá markaðsdeild Toyota í Kauptúni. Ég sá gríðarlegan mun á hæfninni minni þegar ég byrjaði þar og fann hvað námið hér í Prag hafði gert mikið fyrir mig sem nýtist í ólíkum verkefnum. Núna er ég búin að vera úti í rúm tvö ár og er á þriðja og síðasta árinu mínu.“

Eftir að hafa búið í Prag í tvö ár hefur Embla þefað uppi söfn og skemmtilega viðburði þar. Ljósmynd/Aðsend

Lokaverkefni um sundlaugamenningu

„Eftir útskrift ættu möguleikarnir að vera margir, hvort sem er við auglýsingagerð, gerð tónlistarmyndbanda eða kvikmyndagerð svo eitthvað sé nefnt,“ segir hún og bætir því við að hún sé spennt fyrir framhaldinu.

„Það er gott að vita að það séu fjölbreytt tækifæri í boði fyrir mig og margs konar starfsreynsla. Það sem er á dagskránni hjá mér þessa dagana er að vinna í lokaverkefninu mínu. Það er teiknimynd um sundlaugamenningu á Íslandi.“

Hver hefur verið stærsti lærdómurinn í Tékklandslífinu?

„Stærsti lærdómurinn við að búa ein í útlöndum finnst mér hafa verið mannlegu samskiptin og að þora að redda sér með því að spyrja. Það eru ekki allir að skilja ensku hérna sem flækir aðeins málin en það reddast alltaf einhvern veginn.

Að búa með sjálfri sér er mjög lærdómsríkt. Að taka ákvörðun um hvað á að vera í matinn, vaska upp og þvo þvottinn, ofan á stressið sem kemur með skólanum, getur verið erfitt en það tekst alltaf á endanum. Ég hef átt daga þar sem ég finn fyrir einmanaleika en það gengur hjá. Ég hef verið svo heppin að kynnast hér fullt af æðislegum vinum og er dugleg að gera alls konar skemmtilega hluti með þeim þegar ég hef tíma,“ segir Embla Eir og nefnir einnig að hún hafi fengið margar heimsóknir frá fjölskyldu sinni og vinum, enda er bara tæplega fjögurra tíma flug til Prag.

Hér er Embla Eir með vinkonum sínum á skrallinu.

Hér er Embla Eir með vinkonum sínum á skrallinu. Ljósmynd/Aðsend

Hvað gerir þú í frítímanum þínum?

„Í frítíma mínum hittumst við mikið vinirnir og kíkjum í bæinn. Förum oft á einn Aperol-stað með þessum svakalega ódýru Aperol Spritz sem er alveg tilvalið að kíkja á áður en við förum annað. Uppáhaldsstaðirnir hafa verið írsku pöbbarnir þar sem stemningin er mjög mikil.

Svo eru flottir klúbbar hér úti og skemmtileg kaffihús með rólegri stemningu sem ég sit oft á og teikna. Ég elska að fara upp í Letná Park sem er með æðislegt útsýni yfir alla borgina þar sem gaman er að sitja að spila, spjalla og njóta. Þessa garðs sakna ég mest þegar ég kem heim til Íslands á sumrin. Það eru fullt af svona „common place“ stöðum í Prag sem mættu alveg vera til á Íslandi.

Ég hef líka fengið að upplifa að fara á hokkíleiki hérna og þeir eru svakalegir, mér finnst einstaklega gaman að sjá stemninguna á þessum leikjum. Það eru líka reglulega tónleikar í gangi hér í Prag sem eru ekki dýrir. Ég hef einmitt farið á Kaleo og uppistand með Ara Eldjárni en missti reyndar af tónleikum sem Ásgeir Trausti hélt,“ segir hún.

Embla Eir nýtur þess að vera úti á meðal fólks á kvöldin. Ljósmynd/Aðsend

Hvaða árstími er í uppáhaldi hjá þér í Prag?

„Uppáhaldsárstíðin mín er vorið. Þá er skólanum að ljúka og allir til í að gera eitthvað skemmtilegt í sólinni og mér finnst æðislegt að geta verið léttklædd. Við förum þá oft í lautarferð í garðinum og á kvöldin djömmum við langt fram á nótt. Þá er ennþá hlýtt úti þrátt fyrir myrkur! Alveg yndislegt,“ segir hún. 

内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅