Spliff, donk og sleggja
Út ólíkum áttum
Pistill Árna Helgasonar úr Sunnudagsblaðinu
Hið ódauðlega atriði Fóstbræðra um sölumanninn sem bankar upp á og útskýrir af miklu öryggi hvernig spliff, donk og gengja virka kom upp í hugann nú þegar bráðum tvö ár eru liðin frá kosningum. Lykilorðin þá voru sleggja, plan og að negla niður vexti. Rétt eins og Jón Gnarr í atriðinu skildum við ekki alveg út á hvað þetta gekk en vildum ekki láta á neinu bera og spiluðum með.
Það verður sífellt augljósara hversu innihaldslaus þessi slagorð voru. Þetta var sett fram í þeirri von að hlutirnir myndu lagast af sjálfu sér. Í efnahagsmálum blasir við áhugaverður kokteill af „vonum-það-besta“-úrræðaleysi og gjalda- og skattahækkunum á fólk og fyrirtæki ofan í sífellt þyngri stöðu. Þetta er ríkisstjórn sem virðist stundum líta svo á að það sé nóg að halda leikræna blaðamannafundi og þá leysist hlutirnir, ef hagræðingartillögur eru kynntar fjölmiðlum þá sé í raun búið að hagræða. Ef skrifað er stórt núll á töflu og tekin mynd hefur fjárhagur ríkisins verið réttur af.
En í raun hefur ótrúlega lítið áunnist. Vextir hafa haldist háir og á þessu ári hefur Seðlabankinn hækkað stýrivexti þrisvar sinnum. Í rökstuðningi bankans fyrir hækkun í ágúst kom fram að helsti orsakavaldur verðbólgu innanlands væri opinberar verðhækkanir. Þrátt fyrir þessa leiðsögn bankans var næsta útspil ríkisstjórnarinnar að kynna fjárlagafrumvarp sem kvað á um 5,2% hækkun á opinberum gjöldum, sem stjórnin þurfti svo að bakka með í framhaldinu þegar sveitarfélög og fyrirtæki kynntu sín áform um hóflegri gjaldahækkanir. Hallaleysi fjárlaga á að ná með skatta- og gjaldahækkunum en aðhaldið gekk fyrst og fremst út á að fresta og færa til framlög til ýmissa framkvæmda og verkefna milli ára.
Í vor voru kynntar efnahagsaðgerðir sem áttu að taka á verðbólgu. Þær voru þríþættar: tímabundin lækkun virðisaukaskatts á eldsneyti, tilnefning sérstaks vaktmanns til að fylgjast með því að olíufélögin styngju ekki lækkuninni í vasann og svo fjölgun hleðslustöðva, sem vekur áhugaverðar heimspekilegar vangaveltur um hvernig hleðslustöð geti bjargað efnahag. Lækkunin á virðisaukaskatti gilti í fjóra mánuði en svo hækkaði eldsneytisverðið auðvitað strax aftur með tilheyrandi hækkun verðbólgu. Hún mælist nú tæplega 6% og hefur ekki farið undir 5% á árinu.
Fréttir af uppsögnum og auknu atvinnuleysi eru birtingarmynd þess samdráttar sem er byrjaður víða í hagkerfinu. En ríkisstjórnin virðist ekki taka þessa stöðu mikið til sín. Hún talar í frösum, segir að það sé styrk hönd á stýri þótt enginn kannist við þetta örugga ökulag. Rétt eins og gengjan þá endar þetta hvort eð er allt inni í geymslu.
内容来自 Mbl.is - Innlendar fréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗