Fyrstu vikurnar voru klikkaðar
Bjarki Már Elísson, landsliðsmaður í handbolta, skipti yfir til franska liðsins París SG frá Veszprém í Ungverjalandi í sumar. Hann kann vel við sig í frönsku höfuðborginni.
„Mér líður frábærlega. Þetta var náttúrulega rússíbanasumar hjá mér. Þetta gerðist frekar seint og þá fór allt af stað. Fyrstu vikurnar voru svolítið kreisí, ef ég fæ að sletta.
Það var mikið í gangi, að koma búslóðinni og fjölskyldunni og koma öllum fyrir þarna í París. En það gekk þokkalega og mér hefur gengið vel í liðinu. Ég er mjög sáttur,“ sagði Bjarki við mbl.is.
Bjarki hefur farið mjög vel af stað með liðinu, sem er að gera góða hluti í deildinni heima sem og í Meistaradeildinni.
内容来自 mbl.is - Íþróttafréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗