Bjóða 2,5 milljarða fyrir upplýsingar um Íran

Donald Trump Bandaríkjaforseti.

Donald Trump Bandaríkjaforseti. AFP/Corum

Bandarísk stjórnvöld hafa heitið allt að 20 milljónum dala, jafnvirði um 2,5 milljarða íslenskra króna, auk mögulegs búferlaflutnings, hverjum þeim sem veitir upplýsingar um kjarnorkuáætlun Írans.

Miðstjórn Bandaríkjahers greindi frá þessu á samfélagsmiðlinum X í nótt.

Óska eftir upplýsingum um kjarnorkustöðvar og starfsfólk

Verðlaunin eru veitt í gegnum verkefnið Rewards for Justice á vegum bandaríska utanríkisráðuneytisins.

Samkvæmt tilkynningunni er óskað eftir upplýsingum um kjarnorkustöðvar Írans, búnað og starfsfólk sem tengist áætluninni, þar á meðal vísindamenn.

Verkefninu var komið á fót árið 1984 og er ætlað að greiða fyrir upplýsingar sem vernda líf og hagsmuni Bandaríkjamanna.

„Þeir hefðu lagt Mið-Austurlönd í rúst“

Donald Trump Bandaríkjaforseti hefur ítrekað haldið því fram að bandarískar hersveitir hafi í raun lagt kjarnorkuáætlun Írans í rúst.

„Ef við hefðum ekki ráðist á Íran væri Ísrael ekki til í dag,“ sagði Trump í West Palm Beach í Flórída í gærkvöldi.

„Ef þeir hefðu haft kjarnorkuvopn hefðu þeir notað þau. Þeir hefðu lagt Mið-Austurlönd í rúst.“

内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅