Stálu Pokémonspilum að verðmæti 117 milljóna úr flutningabíl
Það er ekki bara í tölvuleikjum og kvikmyndum sem Pokémonspil eru uppspretta ansi villtra sagna. Nýlega voru bíræfnir þjófar að verki í Kaliforníu og stálu Pokémonspilum að verðmæti 117 milljóna íslenskra króna. Þeir stálu spilunum úr flutningabíl frá FedEx.
Lögreglan í Santa Ana segir að verðmæti þýfisins sé að minnsta kosti 963.000 dollarar en það svarar til um 117 milljóna króna á núverandi gengi.
Flutningabílnum var lagt fyrir utan höfuðstöðvar Professional Sports Authenticator, betur þekkt sem PSA, í Santa Ana þegar spilunum var stolið.
PSA er eitt þekktasta fyrirtæki heims hvað varðar mat og vottun á safnaraspilum/kortum, þar á meðal á Pokémonspilum.
Lögreglan segir að bílstjórinn hafi lagt bílnum nærri höfuðstöðvum PSA og þar hafi hann verið mannlaus í 60 til 90 mínútur.
Á þessum tíma tókst þjófunum að brjótast inn í hann og stela þremur brettum með Pokémonspilum.
Fréttir af þjófnaðinum fóru að spyrjast út þegar safnarar fóru að fá skilaboð frá PSA um að spilunum þeirra hefði verið stolið. Einn safnari missti spil fyrir rúmlega 100.000 dollara.
内容来自 DV.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗