Morð og mikil sorg á staðnum sem Íslendingar heimsækja - „Mikill harmleikur“
Íslenska karlalandsliðið mætir Búlgaríu í Þjóðadeildinni næsta föstudag en leikurinn fer fram í borginni Plovdiv. Þar átti sér stað mikill harmleikur í lok september.
Iliyan Filipov, 53 ára gamall eigandi og forseti knattspyrnufélagsins Botev Plovdiv, var þá skotinn til bana nærri heimili sínu í borginni.
Málið var rifjað upp í Íþróttavikunni á 433.is í dag þegar rætt var um komandi landsleik.
„Mér fannst þetta kunnuglegt nafn og þarna varð líka mikill harmleikur á dögunum, þegar eigandi knattspyrnuliðs þar í borg var skotinn til bana, 53 ára,“ sagði Helgi Fannar í þættinum.
Filipov var jafnframt þekktur kaupsýslumaður í Búlgaríu og átti eitt stærsta flutningafyrirtæki landsins. Morðið vakti mikinn óhug í landinu og hóf lögregla rannsókn á málinu.
Ísland mætir Búlgaríu á heimavelli Botev Plovdiv, Hristo Botev-leikvanginum, föstudaginn 13. nóvember.
内容来自 DV.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗