Hvasst víða um land í kvöld

Innlent | mbl | 7.11.2026 | 7:10

Vindinn lægir smám saman á morgun og dregur úr rigningu.

Vindinn lægir smám saman á morgun og dregur úr rigningu. mbl.is/Kristinn Magnússon

Búast má við hvössum vindi víða um land í kvöld, að því er fram kemur í hugleiðingum veðurfræðings á Veðurstofu Íslands.

Lægð sem gengur yfir landið veldur suðvestanátt og rigningu víða en austanlands verður að mestu þurrt. Hiti verður á bilinu 6 til 11 stig.

Vindinn lægir á morgun

Vindinn lægir smám saman á morgun og dregur úr rigningu. Á Norðurlandi verður að mestu þurrt annað kvöld og hiti nálægt frostmarki.

Sunnan til má búast við lítils háttar rigningu.

Bjart víða á mánudag

Á mánudag er útlit fyrir rólegt veður og víða verður bjart á köflum, þó gæti rignt eitthvað við austur-, suðaustur- og norðvesturströndina.

Hiti verður 0 til 5 stig og kólnar enn frekar um kvöldið.

内容来自 Mbl.is - Innlendar fréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅