Gasaákæru vísað frá dómi

Héraðsdómur Reykjaness hefur fengið fleiri mál sem rekja má til heiðursofbeldis til úrlausnar. mbl.is/Karítas

Palestínskur faðir hótaði að drepa eiginkonu sína hér á landi ef hún heilsaði karlmönnum. Hótunin barst viku áður en hún kom hingað með börnin þeirra fimm.

Hún sagðist hafa talið fjölskyldusameiningu hér eina tækifærið til að bjarga börnunum frá stríðinu á Gasa. Innan viku frá komunni hafði hún flúið heimilið og leitað skjóls í Kvennaathvarfinu.

Héraðsdómur Reykjaness dæmdi manninn í tveggja og hálfs árs fangelsi fyrir brot gegn konunni og börnunum. Hann beitti börnin ofbeldi, hótaði að senda konuna úr landi án þeirra og sendi ættingjum erlendis myndir af einni dætranna án höfuðslæðu ásamt niðrandi ummælum um mæðgurnar.

Benti á menningu og reglur

Við skýringar á háttsemi sinni vísaði hann meðal annars til menningar og reglna um hegðun giftra kvenna.

Samkvæmt dóminum lauk ógnarástandinu ekki fyrr en hann var hnepptur í gæsluvarðhald ári eftir komu fjölskyldunnar hingað.

Ákæru vegna ætlaðra brota á Gasa var vísað frá. Þar var manninum meðal annars gefið að sök að hafa nauðgað annarri dóttur sinni ítrekað frá sex eða sjö ára aldri og hinni þegar hún var fimm ára.

Landsréttur staðfesti frávísunina. Meðal ástæðna var að fullnægjandi upplýsingar skorti um hvaða refsilög giltu á Gasa á þeim tíma og hvort háttsemin hefði verið refsiverð þar.

Lesa má nánar um málið á bls. 14 og 16 í Morgunblaðinu í dag.

内容来自 Mbl.is - Innlendar fréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅