Ók á tvo ljósastaura og upp á umferðareyju
Ökumaður var handtekinn í nótt eftir að hafa ekið á ljósastaur, þaðan upp á umferðareyju og loks á annan ljósastaur.
Er hann grunaður um akstur undir áhrifum bæði áfengis og fíkniefna og var vistaður í fangageymslu.
Þetta kemur fram í dagbók lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu en atvikið átti sér stað í umdæmi lögreglustöðvar 1, sem annast eftirlit í Austurbæ, Miðbæ, Vesturbæ og á Seltjarnarnesi.
Skildu ekki fyrirmæli lögreglu
Í sama umdæmi var lögregla kölluð til vegna tveggja manna sem reyndu að komast aftur inn í húsnæði sem þeim hafði verið vísað úr.
Mennirnir virtust ekki skilja fyrirmæli lögreglu um að þeir mættu ekki fara aftur inn og voru þeir handteknir og vistaðir í fangaklefa sökum ástands.
Þá voru fjórir handteknir í miðbænum fyrir brot á lögreglusamþykkt Reykjavíkurborgar eftir að hafa stofnað til slagsmála.
Einn þeirra var vistaður í fangaklefa vegna ástands en hinum var sleppt að lokinni skýrslutöku á vettvangi.
Enginn hnífur fannst
Í umdæmi lögreglustöðvar 2, sem annast Hafnarfjörð, Garðabæ og Álftanes, var tilkynnt um einstakling vopnaðan hnífi á krá. Lögregla fór þegar á staðinn en enginn hnífur fannst á þeim sem tilkynningin varðaði.
Í umdæmi lögreglustöðvar 3, sem nær yfir Kópavog og Breiðholt, var tilkynnt um innbrot í heimahús og er málið í rannsókn.
内容来自 Mbl.is - Innlendar fréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗