Fjölskyldan fengið að heyra að ég sé fáviti, bjáni og asni
„Það sem mér finnst leiðinlegast er að það er oft bara farið beint í manninn,“ sagði Hannes Sigurbjörn Jónsson, framkvæmdastjóri KKÍ, í Dagmálum.
Hannes, sem er 51 árs gamall, var ráðinn framkvæmdastjóri KKÍ árið 2023 eftir að hafa verið formaður sambandsins frá árinu 2006.
Drullað yfir mann á samfélagsmiðlum
Hannes hefur starfað lengi fyrir körfuboltahreyfinguna á Íslandi og hefur ýmsa fjöruna sopið í starfi sínu fyrir íslenskan körfubolta.
„Fjölskyldan mín hefur oft fengið að heyra það hvað ég sé mikill fáviti, bjáni og ansi og menn búa þetta til út frá einhverri umræðu sem verður til,“ sagði Hannes.
„Þú græðir ekkert á því að tala illa um fólk því það eru allir að gera sitt besta. Það hef ég alltaf gert og það mun ég alltaf gera. Ég er orðinn vanur því að vera blóraböggullinn en ég er ekki KKÍ, við erum að vinna með stjórn, starfsfólki og félögunum. Það eru engar ákvarðanir teknar af einhverri léttúð.
Ég get verið ósammála ákvörðunum sem eru teknar en körfuboltinn er alltaf í fyrsta sæti. Þetta fræga Bónusspjall, ég fór þar út því ég sá engan tilgang með því vera þarna inni því það var allt svo neikvætt. Fólk hefur drullað yfir mann á samfélagsmiðlum en tekur svo utan um mann úti í búð eins og maður sé besti vinur þeirra,“ sagði Hannes meðal annars.
Viðtalið við Hannes í heild sinni má nálgast með því að smella hér eða á hlekkinn hér fyrir ofan.
内容来自 mbl.is - Íþróttafréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗