Fær borgað fyrir að smakka súkkulaði

Jón Fannar Magnússon, framleiðslustjóri Nóa Síríusar, á lager fyrirtækisins. Hann var tólf ára þegar hann vann þar sitt fyrsta sumar og hefur síðan fengið að vaxa og þróast með fyrirtækinu. mbl.is/Árni Sæberg

Jón Fannar Magnússon var tólf ára þegar hann vann sitt fyrsta sumar hjá Nóa Síríusi. Þrjátíu árum síðar stýrir hann framleiðslunni og súkkulaðið hefur enn ekki misst aðdráttaraflið. Hann reynir þó að bíða með smakkið fram yfir hádegi, annars sé hætt við að það standi yfir allan daginn.

Nú er pökkun jólakonfektsins á lokametrunum. Að baki hverjum kassa liggja margar framleiðslulotur sem Jón Fannar og samstarfsfólk hans þurfa að samræma svo allir molarnir skili sér á réttum tíma. Þótt starfið sé orðið að miklu leyti stjórnunarstarf nýtur hann þess enn mest að taka sjálfur til hendinni.

„Mér finnst skemmtilegast að vera úti á gólfi að vinna verkin, vinna við vélarnar, aðstoða einhvern í kringum þær eða þrífa þess vegna. Það veitir mér ákveðna ró. Starfið mitt er í dag orðið mjög mikið tölvustarf, stjórnunarstarf, en mér þykir skemmtilegast að vera þarna, þótt ég sé bara að brjóta kassa eða færa eitthvað.“

Þessi ánægja af því að taka þátt í verkinu hefur fylgt honum lengi. Jón Fannar var barn þegar hann kom fyrst inn í fyrirtækið með móður sinni. Nú ber hann ábyrgð á að framleiðslan gangi upp og að margar hendur, ólíkar vélar og fjölmargar vörutegundir falli saman í eina heild.

Þótt starfið sé að miklu leyti orðið stjórnunarstarf nýtur Jón Fannar þess enn mest að taka sjálfur til hendinni í framleiðslusalnum. mbl.is/Árni Sæberg

Kom fyrst með mömmu

Móðir Jóns Fannars starfaði við sölu og kynningar hjá fyrirtækinu og í gegnum hana kynntist hann þessum heimi. Fyrstu verkefnin voru meðal annars að aðstoða við vörukynningar í verslunum. Hann telur sig þá hafa verið um tíu ára gamlan.

Tveimur sumrum síðar var hann farinn að vinna í verksmiðjunni.

„Ég á staðfesta minningu, sem ég á meira að segja mynd af, frá sumrinu 1996. Þá var ég hér með bróður mínum og var tólf ára. Þá vann maður hér allt sumarið. Frá þeim tíma var ég hér á sumrin, um jól og páska og nánast alla frídaga frá skóla.“

Verkefnin voru önnur en þau eru í dag. Kassar voru límdir saman, vörur taldar og raðað ofan í þá. Við enda pökkunarvélar gátu staðið þrír eða fjórir starfsmenn og handraðað vörunum í kassa sem aðrir höfðu útbúið.

„Það þurfti að búa til kassana, líma á þá strikamerki og ganga svo frá þeim á bretti. Það hefur margt breyst. Fólkið skiptir ennþá mestu máli, en í dag eru kassareisarar, búnaður sem telur og pakkar í kassana, eftirlitsvogir og svo róbóti sem raðar á bretti til aðstoðar.“

Frá haustinu 2005 hefur Jón Fannar verið í föstu starfi hjá fyrirtækinu. Þótt hann sé rétt rúmlega fertugur nær sagan á þessum vinnustað því aftur til bernskunnar.

„Fólk verður oft mjög hissa þegar ég segi hvað ég er búinn að vera hér lengi. Það er gaman að hafa fengið að vaxa og þróast með fyrirtækinu. Ég er með stúdentspróf en að öðru leyti hef ég tekið námskeið og kúrsa sem styðja mig í því sem ég er að gera. Ég er ekki með háskólamenntun en hef tekið diplómur og námskeið, meðal annars í Opna háskólanum.“

Hann hefur einnig sótt þekkingu til Þýskalands og Sviss, gjarnan til vélaframleiðenda eða hráefnisbirgja.

„Þá er maður að læra á vélarnar og tækin eða hvernig á að vinna með hráefnin. Maður kynnist líka starfsfólkinu á þessum stöðum.“

Fólkið sem man eftir litla stráknum

Á vinnustaðnum er enn fólk sem man eftir Jóni Fannari þegar hann kom þangað fyrst með móður sinni.

„Það eru starfsmenn hér inni sem muna eftir því þegar ég labbaði hér inn með mömmu og fannst ég voða lítill og sætur. Þau eru búin að vera hér í tæp fjörutíu ár.“

Sjálfur man hann eftir fjörinu þegar stór hópur skólafólks kom til sumarstarfa.

„Þegar ég var ungur vorum við kannski tólf til fimmtán hérna. Það var mikið gaman og mikið fjör. Margir ungir krakkar og kaffitímar og pásur voru stundum mjög fjörlegar.“

Störfin hafa breyst með aukinni vélvæðingu en reynslan sem byggist upp með árunum hefur áfram mikið vægi. Að mati Jóns Fannars tekur tíma að kynnast bæði fólkinu og framleiðslunni.

„Ég hef sagt við fólk sem kemur hingað í ábyrgðarstöður að það taki að lágmarki tvö ár að komast á þann stað að hugsa: Já, nú er ég kannski kominn með þetta. Svo er kannski eitt ár í viðbót áður en maður getur sleppt takinu. Þetta snýst bæði um að kynnast starfsfólkinu, vörunum og því hvernig við vinnum með þær.

Sumt gerum við bara einu sinni á ári og annað kannski þrisvar. Maður þarf að fara nokkrum sinnum í gegnum þetta. Ef maður er svo lasinn eða í fríi þegar ákveðin vara er framleidd lærir maður hana kannski ekki fyrr en árið eftir.“

Margir molar í einum kassa

Á bak við einn konfektkassa liggja margar framleiðslulotur. Það þarf að framleiða ólíka mola, í réttum hlutföllum og á réttum tíma, svo hægt sé að pakka þeim saman.

Hluti af starfi Jóns Fannars er að samræma þessa vinnu við innkaup, sölu og fyrirhugaða dreifingu.

„Við erum með áætlunarkerfi sem drífur okkur áfram en við þurfum líka að setjast niður og samstilla okkur. Ég fæ upplýsingar um hvenær á að dreifa vörunum og hvernig og legg svo framleiðsluna upp með mínu fólki.

Það eru mjög margar tegundir sem þarf til að geta pakkað í einn konfektkassa. Það þarf að framleiða alla molana og maður getur ekki fyllt allan millilagerinn af einni vöru. Maður þarf að passa hlutföllin, framleiða rétt magn af hverju og eiga allt til svo hægt sé að pakka.“

Hann kemur einnig að vöruþróun. Þegar talið berst að því hvort eitthvert sælgæti sé sérstaklega hans, vara sem hann geti bent á og sagt að sé sín hugmynd, vill hann þó beina athyglinni að fleirum.

„Ég myndi aldrei orða það þannig. Ég myndi alltaf segja að við værum teymi. Mér er alveg sama hvaðan góð hugmynd kemur, hvort hún kemur frá mér eða einhverjum öðrum. Þetta er eitthvað sem við vinnum í sameiningu. Á endanum þarf margar hendur til að koma að verkinu og mér finnst mikilvægast að benda á teymið sem slíkt.

Við erum bæði með vöruþróunarteymi og framleiðsluteymi og þessi teymi þurfa að vinna saman. Hugmyndirnar þurfa að geta farið í gegnum starfsfólkið á gólfinu og vélarnar sem við erum að keyra. Það er mín ábyrgð að þetta vinni vel saman.“

„Ef við höfum lært eitthvað í dag“

Í framleiðslunni geta komið upp ýmiss konar verkefni sem kalla á skjót viðbrögð. Þá kemur reynslan sér vel en líka samstarfið við annað fagfólk.

„Við erum með frábært teymi í viðhaldsdeildinni. Þar eru rafvirkjar og vélvirkjar sem styðja vel við okkur í framleiðslunni. Ég er búinn að vera mikið úti á gólfi með þeim í dag að brasa í ýmsum verkefnum. Þegar vélarnar eru að stríða okkur er ég allavega mættur til að reyna að styðja við og sjá hvað hægt er að gera.“

Ábyrgðin í matvælaframleiðslu er mikil. Jón Fannar leggur áherslu á þjálfun starfsfólks, meðhöndlun varanna og að brugðist sé við ef eitthvað fer úrskeiðis.

„Við erum að þjálfa starfsfólkið þannig að það átti sig á því að það sem það er að gera skiptir mjög miklu máli. Fólk gerir líka mistök og það er bara mannlegt. Við viljum frekar að fólk láti vita að það hafi gert mistök en að því sé sópað undir teppið.

Það skiptir mjög miklu máli að fólk tali hreint út og láti vita. Við förum svo yfir það sem kom upp með gæðasviði og starfsfólkinu og gerum rótargreiningu. Við förum í gegnum skref sem eiga helst að koma í veg fyrir að þetta gerist aftur. Ef við höfum lært eitthvað í dag erum við væntanlega betri en í gær. Markmiðið ætti alltaf að vera að verða sterkara teymi eftir hvern dag.“

Hann horfir jafnframt jákvæðum augum til áframhaldandi tæknibreytinga.

„Þetta eru spennandi tímar. Það eru alltaf hugmyndir í gangi um að auðvelda störfin. Þótt maður fái róbóta þýðir það ekki endilega að starfsmanni sé sagt upp. Það getur þýtt að starfsmaðurinn vinni starfið á auðveldari hátt. Stundum dettur starf auðvitað út en þá er mögulega tækifæri annars staðar til að gera eitthvað meira.“

Smakkar helst eftir hádegi

Þótt Jón Fannar hafi unnið svo lengi innan um súkkulaði hefur áhuginn á því ekki dvínað. Hann smakkar enn og á erfitt með að velja sér eitt uppáhald.

„Mér finnst eiginlega allt ótrúlega gott. Það er svolítið minn veiki hlekkur. En rjómasúkkulaði með Trompi, Nóa Konfekt, Nóa Kropp og Eitt Sett bitar. Mér finnst þetta allt vera geggjað þegar við á.“

Hann reynir þó að hafa ákveðna reglu á smakkinu.

„Ég reyni að miða við að gera það frekar eftir hádegi en fyrir hádegi, ef ég kemst upp með það. Ef maður byrjar fyrir hádegi er maður að smakka allan daginn.“

Dagurinn byrjar gjarnan á hreyfingu milli klukkan sex og sjö. Utan vinnunnar eru það svo meðal annars börnin þrjú og fótboltinn sem eiga hug hans.

„Ég hef áhuga á fótbolta og börnin mín eru öll í honum. Ég elti þau út um allt í fótbolta. Við förum líka alltaf saman fjölskyldan einu sinni á ári til útlanda og ég hef gaman af útivist. Ég spila padel einu sinni í viku með félögunum. Ég er ekkert heltekinn af því að ganga fjöll eða fastur í því að hjóla eða hlaupa. Ég geri svolítið af þessu öllu til að halda mér við.“

Súkkulaðigerðin fylgir honum hins vegar síður heim.

„Ég geri lítið af því að borða sætindi á kvöldin. Mér finnst ég alveg borða nógu sætt í vinnunni.“

Jólin núna og páskarnir næst

Nóa Konfekt hefur fylgt jólahaldi landsmanna um aldarskeið og kemur nú í nýjum, fallegum umbúðum. Á bak við hvern kassa er vinna fólksins í framleiðslusalnum, þar sem Jón Fannar hefur varið stórum hluta starfsævinnar. Pökkun jólakonfektsins hófst um mánaðamótin ágúst og september og þegar viðtalið er tekið er sú vinna á lokametrunum.

Næsta stóra vertíð er þegar fram undan.

„Það styttist í páskana. Við byrjum á þeim í desember.“

Eftir öll þessi ár er Jón Fannar enn fljótur að grípa í verkefnin þegar hann gengur um framleiðslusalinn. Þar fær ánægjan af því að vinna með höndunum að njóta sín samhliða ábyrgðinni sem fylgir því að halda framleiðslunni gangandi.

En sér hann fyrir sér að vera hér áfram, jafnvel fram á sjötugsaldur?

„Verður maður ekki að vera meðan einhver nennir að hafa mann?“

内容来自 Mbl.is - Matur,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅