„Ég hef alltaf haft mjög mikinn áhuga á öllu sem tengist hönnun og heimili“
Mikil spenna er í loftinu hjá Lísu Ólafsdóttur og Ingu Harðardóttur, en í dag, laugardaginn 7. nóvember, opna þær dyrnar að glæsilegri húsgagnaverslun Kave í Kópavogi. Verslunin er í Silfursmára 12, í Torfhöllinni svokölluðu. Stöllurnar hafa unnið hörðum höndum að undirbúningnum síðustu mánuði. Kave er spænskt húsgagna- og heimilisvörumerki með verslanir víðs vegar um Evrópu og nú er loks komið að Íslandi.
Lísa hefur mikla reynslu af verslunarrekstri, en hún rak um árabil Madison Ilmhús í Aðalstræti og er nú framkvæmdastjóri Kave. Inga er stílisti og hefur lengi unnið við innanhússhönnun og önnur hönnunartengd verkefni. Það var einmitt hún sem kveikti áhuga Lísu á merkinu.
„Ég hef alltaf haft mjög mikinn áhuga á öllu sem tengist hönnun og heimili, en ég dróst eiginlega inn í þetta spennandi verkefni í gegnum Ingu sem hafði verið að nota vörur frá Kave í ýmis hönnunarverkefni,“ segir Lísa.
Lísa framkvæmdastjóri Kave hefur víðtæka reynslu af verslunarrekstri og rak um árabil Madison Ilmhús.
Hvernig uppgötvaði Inga Kave?
„Það má segja að það hafi verið fyrir hálfgerða tilviljun. Hún hefur lengi unnið við að hanna íbúðir og sinna öðrum tengdum verkefnum á Íslandi og var alltaf að leita að einhverju nýju og spennandi til að bjóða viðskiptavinum sínum. Svo rakst hún á Kave á sýningu erlendis. Þegar hún prófaði að panta vörur fyrir viðskiptavini komst hún fljótt að því hversu vandaðar og fallegar þær voru og á frábæru verði, sem skemmir sko ekki fyrir.
Hún fór því að kynna sér merkið betur og komst að því að fyrirtækið er ekki nýtt af nálinni, heldur var það stofnað árið 1983 á Spáni. Síðustu tíu ár hefur Kave unnið að því að þróast úr því að framleiða eingöngu fyrir aðra yfir í að byggja upp sitt eigið vörumerki. Fyrirtækið selur nú vörur til yfir 80 landa og rekur um 150 verslanir.“
„Það hjálpar okkur að halda vöruverðinu lágu“
Hvað var það sem gerði þig spennta fyrir Kave?
„Í fyrsta lagi hreifst ég strax af vörunum. Gæðin eru frábær, flestar vörurnar eru framleiddar í Evrópu og þær hafa þetta stílhreina útlit sem við sækjum svolítið í hér á landi og annars staðar á Norðurlöndunum. En vörurnar frá Kave hafa líka eitthvað aukalega við sig, þessa Miðjarðarhafsmýkt sem einkennir úrvalið. Ég er ekki í nokkrum vafa um að fólk muni hrífast af þeim, rétt eins og ég gerði þegar ég kynntist þeim,“ segir Lísa.
Aðspurð hvað greini vöruúrvalið frá því sem aðrar sambærilegar verslanir hér á landi bjóði segir Lísa verðið einstakt miðað við gæðin.
„Já, gæðin eru bara langt umfram það sem verðið gefur til kynna. Ég held að það eigi eftir að koma flestum, ef ekki öllum, skemmtilega á óvart að ganga inn í svona flotta hönnunarverslun og sjá verðið. Það er frábært.“
Verslunin er í 400 fermetra rými í Torfhöllinni. Lísa og Inga segja vel við hæfi að opna hönnunarverslun í nýlegu húsi með torfþaki sem sjálft hefur vakið athygli fyrir hönnun sína. „Okkur fannst skemmtilegt að opna svona verslun í húsi sem hefur einmitt sjálft vakið athygli fyrir skemmtilega og öðruvísi hönnun,“ segir Lísa og bætir við: „Svo er nóg af bílastæðum.“
Verslunin verður fyrst og fremst sýningarsalur þar sem húsgögn verða pöntuð sérstaklega fyrir viðskiptavini. Lísa segir það gera þeim kleift að bjóða hagstæðara verð. „Stór ástæða þess að við getum boðið upp á svona gott verð er að við erum í rauninni sýningarsalur. Við verðum með smávöru á lager, en húsgögnin verða að langmestu leyti pöntuð sérstaklega fyrir fólk. Það hjálpar okkur að halda vöruverðinu lágu.“
Glæsilegt úrval húsgagna og heimilisvara með stílhreinu útliti og Miðjarðarhafsmýkt er í boði hjá Kave. Ljósmyndir/Ragnheiður Arngrímsdóttir
Með sérstakt rými sem kallast „atelier“
Hvers konar vörur ætlið þið að leggja áherslu á og hvernig hafið þið valið úrvalið fyrir íslenskan markað?
„Við Inga völdum það sem okkur fannst líklegt að myndi höfða til Íslendinga. Við bjóðum einnig upp á að láta sérsníða vörur. Í versluninni erum við með sérstakt rými sem kallast „atelier“. Þar getur fólk komið og sest niður, jafnvel með teikningar að íbúðinni sinni. Við getum aðstoðað það við að velja húsgögn og raða þeim í rýmin, ásamt því að hjálpa til við að sérsníða vörur með tilliti til stærðar, áklæða og lita.“
Er eitthvað sem þú ert sérstaklega spennt að kynna landsmönnum?
„Við erum mjög spennt að kynna þessa sérhönnunarþjónustu og auðvitað bara spennt fyrir öllu sem þessu skemmtilega ævintýri fylgir. Hjá Kave er einnig fallegt úrval garðhúsgagna sem koma með vorinu, en það er hægt að panta þau hjá okkur núna. Útihúsgögnin frá Kave eru alveg sérstaklega glæsileg og vönduð.“
Fljótlega eftir að Inga kynntist Kave fyllti hún heimili sitt af vörum frá merkinu. Það liggur því beint við að spyrja hvort Lísa sé búin að gera það sama.
„Nei, en ég stend í flutningum og þegar við förum að gera og græja á nýja staðnum verður fullt af flottum hlutum frá Kave.“
Er svo stórt opnunarpartí í bígerð?
„Já, það er margt í bígerð og við hlökkum til að kynna það fljótlega.“
内容来自 Mbl.is - Smartland - Heimili og hönnun,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗



