Óttar Guðmundsson skrifar: Marilyn og Ragnheiður
Ragnheiður Brynjólfsdóttir biskupsdóttir er ein frægasta kona Íslandssögunnar. Hún var dóttir voldugasta embættismanns þjóðarinnar á 17du öld og umsetin vonbiðlum enda bæði falleg og vel gefin. Daði prestur Halldórsson dró þessa glæsimey á tálar og gerði henni barn. Brynjólfur biskup varð ævareiður og sendi hana að heiman. Hún eignaðist sveinbarn og kom smám saman aftur heim í Skálholt. Mannorð og sómi voru á ruslahaug og vinnufólkið hafði ástamál hennar í flimtingum. Ragnheiður fékk berkla og dó ung harmrænum dauða. Hún varð þess vafasama heiðurs aðnjótandi að sálmurinn frægi „Allt eins og blómstrið eina“ var fyrst sunginn yfir henni. Með dauða sínum breyttist Ragnheiður úr lauslátri stelpu í virðulega jómfrú sem þjóðin syrgir og dáir. Hún hætti að eldast og varðveitti þannig eilífa æsku sína.
Þetta minnir á aðra sögu. Á þessu ári eru 100 ár liðin frá fæðingu leikkonunnar Marilyn Monroe. Þegar hún fannst látin á heimili sínu í ágústbyrjun árið 1962 grunaði engan að hún ætti eftir að verða frægasta andlit Hollywood. Henni hafði mistekist flest í lífinu og Elísabet Taylor var frægasta leikkona borgarinnar. Marilyn hafði ánetjast bæði áfengi og róandi lyfjum. Þrír eiginmenn og nokkrir elskhugar komu við sögu í ruglingslegu ástalífi.
Hún svipti sig lífi með því að taka inn 40 Mebumalnatrium töflur. Þessi sorglegi dauðdagi gerði Normu Jean Baker (eins og Marilyn í raun hét) ódauðlega. Heimurinn var sem steini lostinn. Fólk trúði því ekki að dauðinn gæti lagt slíka ofurfegurð að velli. Í lifandi lífi komu menn fram við hana eins og heimska og lausláta blondínu en eftir dauða hennar var farið að skoða og ræða persónuleika hennar, örlög og sögu.
Eftir dauða sinn náði Marilyn að verða helgimynd heillar kynslóðar. Hún hætti að eldast og skaut öllum keppinautum sínum ref fyrir rass. Elísabet Taylor varð smám saman gömul og hrukkótt. Marilyn var tekin í guðatölu eftir dauða sinn.
Dauðinn svarar engum spurningum og því verða eftirlifendur að geta í eyðurnar. Venjulega rætast þá allar óskir hins látna í endurminningu fólks. Allt í einu varð Marilyn frábær leikkona, hreinlíf gyðja og ímynd eilífrar æsku og fegurðar. Ragnheiður biskupsdóttir varð með dauða sínum helgmynd og fórnarlamb rómantískrar ástarsögu með slæmum endi. Pakkið sum gerði gys að þessum stelpum er löngu dautt og gleymt en þær lifa áfram ungar að eilífu.
内容来自 DV.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗