Faðir Meghan Markle handtekinn vegna barnaníðsefnis
Thomas Markle, faðir Meghan Markle, hertogaynju af Sussex og eiginkonu Harrys Bretaprins, var handtekinn af bandarísku alríkislögreglunni FBI í Flórída í dag.
Hann er sakaður um vörslu barnaníðsefnis, þar á meðal mynda sem sagðar eru sýna hann með stúlkum sem ekki höfðu náð kynþroska.
Markle, sem er 82 ára, kom fyrir alríkisdómara í Tampa sama dag og var sleppt úr haldi gegn því að sæta stofufangelsi. Hann hefur enn ekki játað eða neitað sök fyrir dómi. CNN greinir frá.
Samkvæmt tilkynningu bandaríska dómsmálaráðuneytisins fundu alríkislögreglumenn um 78 muni sem innihéldu grunsamlegt barnaníðsefni í tveimur geymslum á Los Angeles-svæðinu í Kaliforníu. Þar á meðal voru ljósmyndafilmur, skyggnur og bækur.
Lögðu hald á muni í Mexíkó
Markle hafði haft geymslurnar á leigu frá árinu 2008. Á tveimur þeirra mynda sem þar fundust sést maður, sem vitni bar kennsl á sem Markle, með nakinni stúlku sem ekki hafði náð kynþroska.
Bandarísk yfirvöld hafa einnig greint frá því að á einni myndanna sjáist nakin stúlka í herbergi sem virðist tilheyra hótelkeðju á Filippseyjum.
Mexíkósk yfirvöld hafa jafnframt lagt hald á muni í geymslum sem tengjast Markle í grennd við Tijuana í Mexíkó.
Sonurinn hafði áður tilkynnt föður sinn
Thomas Markle yngri, sonur Markle og hálfbróðir Meghan, greindi breska dagblaðinu The Sun frá því í október að hann hefði fundið barnaníðsefni í kössum og tölvubúnaði á fyrrverandi heimili föður síns á Filippseyjum.
Hann kvaðst hafa tilkynnt fundinn til yfirvalda á Filippseyjum og í Bandaríkjunum. mbl.is greindi frá ásökununum í síðasta mánuði.
Markle eldri hefur harðlega neitað. Í samtali við Daily Mail sagðist hann vera í áfalli yfir því að sonur hans hefði borið þær fram.
FBI sagði við CNN í október að stofnuninni væri kunnugt um ásakanirnar á Filippseyjum og að hún myndi aðstoða yfirvöld þar eftir því sem við ætti. Jafnframt yrðu rannsökuð hugsanleg brot á bandarískum lögum.
Meghan hefur slitið sambandi við föður sinn
Meghan hefur verið í litlum samskiptum við föður sinn frá árinu 2018, þegar hún giftist Harry Bretaprins. Markle var ekki viðstaddur brúðkaup þeirra.
Hertogaynjan sagðist í október vera afar miður sín vegna ásakananna. Hún hefur jafnframt sagt að ákvörðun hennar um að halda föður sínum frá börnum sínum hafi verið tekin til að vernda þau.
Barnabarn Markle, Noelle Rasmussen, sagði í viðtali í síðasta mánuði að henni hefði alltaf fundist eitthvað bogið við afa sinn.
Verði Markle sakfelldur á hann yfir höfði sér allt að 20 ára fangelsi.
内容来自 Mbl.is - Erlendar fréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗


