Páfinn lentur og í „nokkuð góðu formi“

Erlent | AFP | 6.11.2026 | 23:50

Leó Páfi er staddur í Montevideo, höfuðborg Úrúgvæ.

Leó Páfi er staddur í Montevideo, höfuðborg Úrúgvæ. AFP/Rodrigo Arangua

Leó páfi hefur ferðalag um Suður-Ameríku í „nokkuð góðu formi“ að eigin sögn. 

Páfinn er nú staddur í höfuðborg Úrúgvæ, Montevideo, á tólf daga ferðalagi um Suður-Ameríku.

Hann fór í aðgerð vegna lungnakrabbameins fyrir þremur vikum. Ferðin er sú sjötta sem páfinn, sem er 71 árs, leggur í á erlendri grundu. 

Suður-Ameríka er heimsálfa sem stendur honum nærri. Perú verður án efa hápunktur á ferðalaginu en þar varði Leó páfi tuttugu árum sem trúboði.

Þúsundir manna komu til að sjá hann í Montevideo í dag. Páfinn sagðist vera í „nokkuð góðu formi“ við blaðamenn í flugvélinni sem ferjaði hann yfir Atlantshafið. 

内容来自 Mbl.is - Erlendar fréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅