Ráðin til að njósna fyrir kínversk stjórnvöld
Jensen Huang, forstjóri og einn af stofnendum tæknirisans Nvidia. Fyrirtækið er einn af gervigreindarrisunum. AFP/John Macdougall
Kínverska leyniþjónustan réð viðskiptakonuna Alice Huang til að vingast við Jensen Huang, forstjóra bandaríska tæknirisans Nvidia, og afla upplýsinga um hann. Þetta er niðurstaða bandarískra leyniþjónustustofnana.
Konan starfaði fyrir þjóðaröryggisráðuneyti Kína, æðstu njósnastofnun landsins, og var verkefninu ætlað að afla upplýsinga um háþróaðar gervigreindarörflögur Nvidia.
Þá var hugsanlegt markmið að hafa áhrif á fyrirtækið svo það beitti sér fyrir því að fullkomnustu örflögur þess yrðu gerðar aðgengilegar í Kína.
Eitt verðmætasta fyrirtæki heims
Dagblaðið New York Times greinir frá þessu og vísar til heimildarmanna sem þekkja til eftirlits bandarískra yfirvalda með konunni.
Áður hafði verið greint frá því að bandarískar leyniþjónustustofnanir teldu Alice Huang hafa miðlað upplýsingum til kínverskra stjórnvalda og að hún hefði myndað náin tengsl við forstjóra Nvidia. Nú kemur í fyrsta sinn fram að hún hafi starfað beint fyrir kínversku leyniþjónustuna og verið ráðin sérstaklega til að afla upplýsinga um forstjórann.
Nvidia er eitt verðmætasta fyrirtæki heims og gegnir lykilhlutverki í þróun gervigreindar. Örflögur fyrirtækisins eru eftirsóttar um allan heim og hafa bandarísk stjórnvöld sett hömlur á útflutning þeirra fullkomnustu til Kína.
Jensen Huang er jafnframt náinn bandamaður Donalds Trumps Bandaríkjaforseta og hefur beitt sér fyrir því að slakað verði á takmörkunum á sölu gervigreindarörflaga til Kína.
Nvidia er tæknifyrirtæki sem sérhæfir sig meðal annars í öflugum gervigreindarflögum. AFP/Philip Fong
Viðskiptakona með tengsl í tæknigeiranum
Alice Huang, einnig þekkt sem Huang Le, hefur gegnt háttsettri stöðu hjá tæknifyrirtækinu Megaspeed, sem hefur höfuðstöðvar í Singapúr og rekur gagnaver í Asíu.
Fyrirtækið hefur keypt gervigreindarbúnað fyrir milljarða bandaríkjadala og veitt kínverskum fyrirtækjum, meðal annars Alibaba, aðgang að reiknigetu gagnavera sinna.
Alice Huang er vel tengd innan tæknigeirans og árið 2024 náðist mynd af henni ásamt Jensen Huang og fleiri stjórnendum tæknifyrirtækja á bar í Taípei, höfuðborg Taívans.
Bandarísk yfirvöld hafa rannsakað hvort Megaspeed hafi aðstoðað kínversk fyrirtæki við að komast yfir háþróaðar örflögur Nvidia í trássi við bandarískar útflutningstakmarkanir.
Nvidia hefur hafnað því að viðskipti fyrirtækisins við Megaspeed hafi leitt til þess að viðkvæmum upplýsingum væri miðlað. Samskipti Jensen Huang við Alice Huang hafi verið eðlilegur hluti af starfi hans og ekkert óvenjulegt við þau.
Vilja kalla forstjórann fyrir þingið
Málið hefur nú vakið athygli á Bandaríkjaþingi. Þrír formenn áhrifamikilla þingnefnda hafa óskað eftir því að Jensen Huang mæti á lokaðan fund 18. nóvember til að gera grein fyrir samskiptum sínum við Alice Huang og öryggisráðstöfunum Nvidia gegn erlendum njósnum.
Í tilkynningu þingnefndanna segir að málið veki alvarlegar spurningar um þjóðaröryggi Bandaríkjanna og aðgang Kínverja að viðkvæmri bandarískri tækni.
Trump var upplýstur um niðurstöður bandarísku leyniþjónustunnar fyrir um ári, samkvæmt heimildum New York Times, en ákvað þá að grípa ekki til aðgerða.
Ekki liggur fyrir hvaða upplýsingar Alice Huang tókst að afla um Nvidia eða hvort hún hafi haft áhrif á ákvarðanir fyrirtækisins.
内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗
