Guðjón Valur gæti dottið í lukkupottinn
Þýski landsliðsmarkvörðurinn Andreas Wolff gæti gengið til liðs við Gummersbach, lið Guðjóns Vals Sigurðssonar, en félagið er sagt líklegast til að fá hann frá Kiel.
Hinn 35 ára gamli markvörður er samningsbundinn til ársins 2028 en einnig hefur verið rætt um að hann gæti farið næsta sumar.
Christoph Schindler, framkvæmdastjóri Gummersbach, tók vel í möguleikann þegar hann ræddi við Dyn.
„Ég myndi ekki segja nei ef hann stæði einhvern tímann í markinu hér. En það myndu 17 önnur lið í Bundesligunni ekki heldur gera,“ sagði hann.
Schindler bætti við að hann væri ekki að sinna starfi sínu almennilega ef félagið kannaði ekki raunhæfan möguleika á að fá leikmann af gæðum Wolffs.
Elliði Snær Viðarsson, Teitur Örn Einarsson og Garðar Ingi Sindrason leika með Gummersbach, sem er í sjötta sæti þýsku 1. deildarinnar með 14 stig eftir ellefu leiki og á toppi síns riðils í Evrópudeildinni með fjögur stig eftir þrjá leiki.
内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗