Martin fór mikinn í Þýskalandi
Martin Hermannsson átti frábæran leik fyrir Alba Berlín þegar liðið lagði Phoenix Hagen í efstu deild þýska körfuboltans í Berlín í kvöld.
Leiknum lauk með stórsigri Alba Berlín, 102:72, en Martin skoraði sjö stig, tók eitt frákast og gaf sjö stoðsendingar en hann var framlagahæstur á vellinum með 23 framlagspunkta.
Þýskalandsmeistarar Alba Berlín eru með 8 stig í tíunda sæti deildarinnar eftir fyrstu átta umferðirnar en liðið hefur unnið fjóra leiki og tapað fjórum.
内容来自 mbl.is - Íþróttafréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗