Kom Sveindísi í opna skjöldu

Sveindís Jane Jónsdóttir.

Sveindís Jane Jónsdóttir. mbl.is/Eyþór

Landsliðskonan Sveindís Jane Jónsdóttir og liðsfélagar hennar í Angel City eru í miklu stuði fyrir átta liða úrslit úrslitakeppninnar um bandaríska meistaratitilinn í fótbolta.

Angel City mætir Kansas City Current á útivelli á morgun og tryggir sigurvegari einvígisins sér sæti í undanúrslitum.

Angel City hafnaði í fimmta sæti deildarkeppninnar eftir frábæran lokasprett. Liðið hefur ekki tapað í síðustu tíu leikjum sínum og unnið átta þeirra.

Sveindís var gestur í hlaðvarpsþættinum Full Time hjá The Athletic þar sem hún var meðal annars spurð út í gott gengi liðsins.

„Þetta er mjög góð spurning því ég hafði ekki einu sinni gert mér grein fyrir því að við værum á svona langri sigurgöngu fyrr en við höfðum farið í níu leiki án taps. Þá fóru fólk að tala um það og ég hugsaði með mér hversu magnað það væri. Ég hafði einfaldlega ekki áttað mig á því,“ sagði Sveindís.

Hugsum eingöngu um að vinna

Hún lagði áherslu á að markmiðið væri alltaf að vinna leiki, þótt jafntefli hefðu einnig verið á vegi liðsins.

„Við förum alltaf inn í leiki með það að markmiði að vinna. Við höfum líka gert nokkur jafntefli og ég lít á þau sem tvö töpuð stig. Við hugsum eingöngu um sigur og viljum vinna alla leiki.

Það hefur verið frábært að fara tíu leiki í röð án taps en það hefur ekkert að segja í úrslitakeppninni. Þar tekur við allt önnur keppni.

Öll lið geta unnið hvort annað. Næst mætum við Kansas sem hefur verið á góðu skriði á heimavelli og því bíður okkar erfitt verkefni. Við vitum hins vegar að við getum unnið.

Við höfum átt marga frábæra leiki, staðið okkur mjög vel á útivelli og erum eitt besta liðið. Nú tekur við ný keppni og þessi árangur er því ekki eitthvað sem við erum að hugsa um lengur.“

内容来自 Mbl.is - Íþróttir - Fótbolti,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅