Heimili Dagbjartar fuðraði upp eftir saklausa tilraun

Dagbjört Barringer Gunnarsdóttir missti heimili sitt og allar eigur í eldsvoða í Bandaríkjunum þegar sonur hennar, Óðinn, var aðeins tíu mánaða. Aðdragandinn var uppskrift að djúpsteiktum hamborgara sem eiginmaður hennar, Ben Barringer, hafði fundið á TikTok og ákveðið að prófa.

Eiginmaður hennar hafði skömmu áður misst vinnuna og eldsvoðinn bættist í röð áfalla sem fjölskyldan varð fyrir og áttu þátt í þeirri ákvörðun að flytja heim til Íslands. Dagbjört er nýflutt heim ásamt fjölskyldu sinni eftir tólf ára búsetu í Bandaríkjunum.

„Það varð bara olíubruni og það var ágúst og þurrt og heitt – og húsið fuðraði upp,“ segir hún.

„Það fór allt – og það skiptir engu máli“

Brúðarkjóllinn og fótamyndir Óðins frá því hann lá á vökudeild urðu eldinum að bráð. Þegar þau hjónin voru komin á hótel með drenginn á milli sín skipti það þó mestu að þau hefðu öll komist lífs af.

Óðinn var enn með sót undir fingurnöglunum og liðu nokkrir dagar þar til þau náðu að baða hann almennilega.

„Það fór allt – og það skiptir engu máli,“ segir Dagbjört.

„Okkur var alveg sama um allt dótið sem var farið. Það dó enginn í eldinum. Þetta var allt í lagi,“ segir hún.

Ben tók brunann þó nærri sér og átti erfitt með að fyrirgefa sjálfum sér. Dagbjört leit hins vegar á þetta sem slys og bað hann að ímynda sér hvernig honum hefði liðið ef hún hefði verið sú sem kveikti óvart í húsinu. Hún vissi að hann hefði ekki kennt henni um og vildi að hann sýndi sjálfum sér sama skilning.

Á hótelinu rann þó upp fyrir henni hvað það þýddi að eiga ekkert. Þau vantaði tannbursta, pela handa drengnum og náttföt. Hún hljóp því í H&M-verslun skammt frá til að kaupa það allra nauðsynlegasta.

Dagbjört Barringer Gunnarsdóttir segir frá því þegar fjölskyldan missti allar eigur sínar í húsbruna í Bandaríkjunum. Samsett mynd: Colourbox/mbl.is/Kristófer

Sá sjálfa sig í speglinum

Þar greip Dagbjört föt handa syninum í miklum flýti en varð vör við að öryggisvörður fylgdist með henni. Hann tók vörurnar úr höndum hennar og sagðist ætla að geyma þær við kassann þar til hún væri tilbúin að borga.

Hún skildi ekki viðbrögð hans fyrr en hún sá sjálfa sig í spegli. Hún var kolsvört af sóti, með sót í hárinu og rákir niður kinnar þar sem tárin höfðu runnið.

Dagbjört var síðan beðin um að yfirgefa verslunina og sneri miður sín aftur á hótelið. Þegar hún sagði Ben frá atvikinu leit hann á hana og spurði:

„Ertu hissa?“

Þá gátu þau hlegið að þessu saman. Daginn eftir fóru þau með Óðin á landbúnaðarsýningu að skoða geitur, kindur og risagrasker.

„Maður finnur leiðir til að gera hluti jákvæða og forgangsraðar,“ segir Dagbjört og leggur áherslu á að mestu skipti að fjölskyldan hafi öll komist heil á húfi úr brunanum.

Hægt er að horfa á viðtalið við Dagbjörtu í heild sinni hér og fylgjast með henni á TikTok.

内容来自 Mbl.is - Innlendar fréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅