Vantraust samþykkt í Cornell

McGraw-kirkjuturn Cornell-háskóla.

McGraw-kirkjuturn Cornell-háskóla. mbl.is/Flóki Larsen

Starfsfólk Cornell-háskólans samþykkti í dag tillögu um að lýsa yfir vantrausti á skólastjórnendur.

Vantrauststillagan var sett fram eftir skandal þar sem sjö karlkyns nemendur skólans eru sakaðir um að hafa nauðgað kvenkyns nemanda í bræðralagshúsi Chi Phi-reglunnar.

Samþykktin er táknræn og hefur það ekki í för með sér að skólastjórnendur víki samstundis. Hún veikir þó óneitanlega stöðu þeirra og þar með rektorsins Michaels Koltikoff. 

Tillagan var samþykkt með 75 atkvæðum gegn 50 atkvæðum. Fimm voru fjarverandi atkvæðagreiðsluna og fimm vildu ekki kjósa. 

New York Times greinir frá.

Mikið hneyklsi varð þegar upp komst um meinsta hópnauðgun í einni af bræðralagsreglum nemenda Cornell. mbl.is/Flóki Larsen

Kalla eftir breytingum

„Þetta er aðeins upphafið að þeim breytingum sem við viljum sjá,“ segir Adriana Kim, aðstoðarprófessor í tónlistarfræðum við Cornell. 

Kim sagði tímabært að fá skólastjórnendur sem skildu betur hvernig lífið væri fyrir nemendur og þekktu þeirra þarfir.

Trúnaðarráð háskólans sagði í tilkynningu í að það myndi standa þétt við bakið á núverandi rektor, Koltikoff, og öðrum skólastjórnendum. Þeir væru rétta fólkið til að taka á þeim alvarlega vanda sem kynferðisofbeldi væri í skólanum.

Skólastjórnendur hafa verið gagnrýndir harkalega fyrir viðbrögð sín við málinu áður en það vakti heimsathygli í fjölmiðlum. 

Þóttu þeir taka á því með vettlingatökum. Konan sem stefnir mönnunum tók nýlega upp málið aftur og kærir sjömenningana nú í einkamáli, sem og skólann og fleiri aðila.

Á skólalóð Cornell.

Á skólalóð Cornell. mbl.is/Flóki Larsen

内容来自 Mbl.is - Erlendar fréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅