Finnur muninn á 23 ára og 36 ára
Bjarki Már Elísson, landsliðsmaður í handbolta, lærði lítið í ungversku á þeim árum sem hann var hjá stórliðinu Veszprém í Ungverjalandi. Tungumálið er gríðarlega erfitt og nokkuð ljóst að leikmaðurinn ætlaði ekki að búa í landinu til lengri tíma.
Hann er nú kominn til París SG í Frakklandi. Hefur hann meiri trú á sér í frönskunni en ungverskunni?
„Við skulum segja að það séu meiri möguleikar. En maður finnur samt alveg muninn á því að læra þýskuna 23 ára og frönskuna 36 ára.
Steypan er aðeins farin að harðna. Maður er aðeins hægari í þessu en maður var. En ég mun reyna mitt besta,“ sagði Bjarki léttur við mbl.is.
内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗