Kastaði upp þegar hún heyrði dóminn yfir manninum sem stakk hana 22 sinnum

Ung móðir í New York kastaði upp af geðshræringu þegar hún heyrði hversu vægan fangelsisdóm maðurinn sem stakk hana 22 sinnum með hnífi hafði hlotið. Konan var hætt komin eftir árásina, sem átti sér stað á heimili hennar á meðan þriggja ára dóttir hennar var í næsta herbergi.

Kaitlynn Berman, 23 ára, var viðstödd réttarhöld í Bronx á miðvikudag þegar Christopher Joseph, jafnaldri hennar, var dæmdur í átta og hálfs árs fangelsi fyrir hrottalega árás á hana í mars 2025.

New York Post greinir frá málinu en dómurinn hefur vakið mikla reiði meðal stuðningsmanna Berman, sem telja refsinguna allt of væga.

Passaði kött vinkonu sinnar

Atburðarásin hófst þegar Berman var að gæta kattar fyrir vinkonu sína. Kærasti vinkonunnar, Christopher Joseph, kom að heimili hennar til að sækja dýrið.

Joseph bauð sjálfum sér inn í íbúðina og hélt því fram að kærasta hans hefði gefið honum leyfi til að stunda kynlíf með Berman. Þegar hún hafnaði honum breyttist framkoma hans skyndilega.

Hann réðst á hana með hnífi og stakk hana um 22 sinnum í andlit, háls, hendur og kvið. Á meðan árásin stóð yfir var þriggja ára dóttir hennar í næsta herbergi.

Joseph skildi konuna eftir í blóði sínu, stal farsíma hennar og 5.700 Bandaríkjadölum í reiðufé og flúði af vettvangi. Hann var handtekinn skömmu síðar á neðanjarðarlestarstöð í nágrenninu, alblóðugur.

„Líf hennar verður aldrei aftur eins“

Berman lifði árásina af en dvaldi í 48 daga á sjúkrahúsi. Hún gekkst undir þrjár skurðaðgerðir og þurfti ítrekað að fá blóðgjafir.

Hún glímir enn við taugaskemmdir í báðum höndum, verki í andliti og áfallastreituröskun.

„Líf hennar verður aldrei aftur eins og það var,“ sagði Boyde Singletary sem hefur talað máli hennar.

Við réttarhöldin flutti Berman fimmtán mínútna langa yfirlýsingu þar sem hún beindi orðum sínum beint að árásarmanninum.

„Þér tókst ekki að taka líf mitt og þú munt ekki heldur taka framtíð mína frá mér,“ sagði hún.

Joseph sýndi lítil viðbrögð og kaus að þegja þegar honum var boðið að ávarpa dóminn.

Vildi eitt ár fyrir hverja stungu

Joseph játaði í september að hafa gerst sekur um tilraun til manndráps af annarri gráðu. Játningin var hluti af samkomulagi við ákæruvaldið sem leiddi til átta og hálfs árs fangelsisdóms.

Saksóknarar höfðu farið fram á tíu ára fangelsi en verjendur hans vildu vægari refsingu.

Þegar Berman heyrði niðurstöðuna varð henni svo mikið um að hún kastaði upp.

„Þessi maður, þetta skrímsli, Christopher Joseph, ætti að fá 22 ára fangelsi eða lífstíðardóm – eitt ár fyrir hverja hnífsstungu. Hann sýnir enga iðrun, ekki neitt,“ sagði Singletary fyrir utan dómshúsið.

Joseph verður jafnframt undir eftirliti í fimm ár eftir að hann lýkur afplánun og hefur verið bannað að hafa samband við Berman.

Stuðningsmenn hennar segjast ætla að krefjast þess að dómurinn verði endurskoðaður.

内容来自 DV.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅