Þura og Arnar selja Vesturbæjarperlu
Þuríður Kristín Kristleifsdóttir býr á fallegu heimili í Vesturbænum með sambýlismanni sínum Arnari Jónmundssyni. Samsett mynd
Þuríður Kristín Kristleifsdóttir, nýráðin listrænn stjórnandi HönnunarMars, og sambýlismaður hennar Arnar Jónmundsson framleiðandi hafa sett fallega íbúð sína á Reynimel á sölu. Íbúðin er 119 fermetrar og er ásett verð 97,9 milljónir.
Þuríður Kristín og Arnar hafa tekið íbúðina fallega í gegn en á sama tíma haldið í einkenni hússins. Loftlistar og rósettur fá að njóta sín í bland við nútímaleg þægindi eins og gott opið eldhús með eyju og barstólum. Þuríður Kristín, eða Þura Stína eins og hún er kölluð, er grafískur hönnuður og fer það ekki milli mála að manneskja með næmt auga fyrir litum og áferð býr á heimilinu. Öll herbergi eru máluð í fallegum litum og loftin líka, þannig hafa þau búið til nýjan heim öllum herbergjum. Á heimilinu eru einnig listaverk eftir Þuru Stínu.
Húsið er sérstaklega reisulegt og var teiknað af Halldóri H. Jónssyni arkitekt og reist árið 1955. Í sama húsi er íbúð sem kom fyrir í þáttunum Vigdísi og var þá sannkölluð tímavél.
Af fasteignavef mbl.is: Reynimelur 57
Holið tengir saman önnur rými í íbúðinni. Flísarnar setja punktinn yfir i-ið. Ljósmynd/Af fasteignavef mbl.is
内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗


