Búin að fá nóg af heræfingum

Leikkonan Helen Mirren á frumsýningu í London í september. Hún segir æfingar kanadíska flughersins orðnar of erfiðar fyrir sig. AFP/Henry Nicholls

Óskarsverðlaunaleikkonan Helen Mirren hefur lagt tólf mínútna æfingakerfi kanadíska flughersins á hilluna og snúið sér að jóga.

Mirren, sem er 81 árs, hafði lengi mælt með æfingunum en segir þær nú orðnar of erfiðar.

„Ég gerði þetta áður en geri það ekki lengur. Þetta er of lýjandi. Ég stunda jóga í um tíu til fimmtán mínútur á dag,“ segir hún.

Æfingakerfið, sem nefnist XBX, var þróað fyrir konur í kanadíska flughernum. Það tekur aðeins tólf mínútur á dag og ekki þarf að nota nein tæki. Æfingarnar verða smám saman erfiðari eftir því sem þrek og styrkur aukast.

Fór aldrei lengra en á annað stig

Mirren hefur í gegnum tíðina talað opinskátt um samband sitt við líkamsrækt. Í viðtali við fjölmiðla ytra árið 2014 sagðist hún hafa gripið til æfinganna af og til alla ævi, einkum þegar henni fyndist hún vera komin úr formi.

„Þetta kemur manni rólega í form. Eftir tvær vikur hugsar maður að nú geti maður farið í ræktina,“ sagði hún þá.

Í viðtali við breska Vogue árið 2021 lofaði hún æfingakerfið á ný en viðurkenndi að hún hefði aldrei komist lengra en á annað stig. Hún sagðist jafnframt geta verið „ótrúlega löt“ og stundum þurfa að koma sér aftur af stað.

Leikkonan tekur sér nú tíu til fimmtán mínútur á dag til að stunda jóga. AFP/Cole Burston

Daily Mail

内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅