Ekki fleiri með mislinga í 35 ár
Svo mörg mislingatilfelli hafa komið upp í Bandaríkjunum á árinu að fleiri tilfelli hafa ekki greinst í 35 ár.
Yfir 5.000 tilfelli eru skráð samkvæmt opinberum gögnum sem birt voru í dag.
Nánar tiltekið hafa 5.182 greinst með mislinga það sem af er ári. Í það minnsta átta hafa dáið vegna mislinga á árinu, þar á meðal ungabörn, að sögn heilbrigðisyfirvalda.
Í fyrra voru tilfellin 2.289 yfir allt árið.
Aukin andstaða við bólusetningar
Mislingar eru mjög smitandi sjúkdómur sem auðvelt er að koma í veg fyrir með bóluefni að sögn Adams Ratner smitsjúkdómasérfræðings sem ræddi við AFP-fréttaveituna.
Andstaða við notkun bóluefna hefur aukist á síðastliðnum árum í Bandaríkjunum.
Árið 2000 var því fagnað að sjúkdómnum hefði verið útrýmt. Hann hefur þó átt afturkvæmt vegna aukinnar andstöðu við notkun bóluefna.
RFK sakaður um að ala á ótta gegn bóluefni
Heilbrigðisráðherrann, Robert F. Kennedy Jr., hefur verið sakaður um að ala á þeim ótta.
„Robert F. Kennedy Jr. trúir því ekki að mislingar séu stórt vandamál og vill ekki trúa því að dauðsföll hafi orðið vegna þeirra,“ segir Ratner.
„Það eru börnin sem líða fyrir þennan sjúkdóm, ekki þeir sem taka ákvarðanirnar,“ segir hann.
Áður en bóluefni var fundið upp gegn mislingum dóu hundruð þúsunda ár hvert í Bandaríkjunum vegna þeirra.
内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗