Það er bara gæsahúð
„Þetta var flottur leikur hjá okkur og það var geggjað að fá að spila í Höllinni fyrir framan okkar fólk,“ sagði Reynir Þór Stefánsson, landsliðsmaður í handbolta, í samtali við mbl.is um 48:26-stórsigurinn á Úkraínu í undankeppni EM 2028 á miðvikudaginn var.
Reynir var aðeins að leika sinn annan landsleik í Laugardalshöllinni.
„Fyrsti landsleikurinn minn var í Höllinni og þetta er annar leikurinn minn núna. Það er bara gæsahúð að fá að spila í Höllinni,“ sagði hann.
En hvað gerir Laugardalshöllina svona sérstaka?
„Ég veit ekki, það er eitthvað öðruvísi andrúmsloft. Líka þegar maður var hérna á Íslandi fékk maður aldrei að spila þarna nema í bikarnum. Þetta er aðeins öðruvísi en að fá að spila með félagsliði,“ sagði hann.
内容来自 Mbl.is - Íþróttir - Handbolti,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗