Tendruðu nýtt innsiglingarljós í Hafnarfirði
Lúðvík Geirsson, Viktor Pétur, Finnsson, Sigurður Einarsson arkítekt og Þráinn Hauksson, hönnuður strandstígsins, undir nýja ljósinu, en hann tendraði ljósið. Samsett mynd
Kveikt var formlega á nýrri lýsingu á Norðurgarði við Hafnarfjarðarhöfn í gærkvöldi. Þar með lauk umfangsmiklu uppbyggingar- og endurbótaverkefni sem staðið hefur yfir á svæðinu undanfarin ár.
Á vef Hafnarfjarðarbæjar segir að endurbæturnar hafi hafist með grjótvörnum utan við garðinn, sem var hækkaður um rúma tvo metra. Á þessu ári hafi garðurinn síðan verið klæddur harðviði og þar komið upp setpöllum og útsýnissvæði.
„Það var ánægjulegt að fá að vinna að þessu og fá að bjóða gesti velkomna sem formaður hafnarstjórnar og fagna þessum fallega og merka áfanga í uppbyggingu hafnarinnar,“ segir Viktor Pétur Finnsson, formaður hafnarstjórnar Hafnarfjarðar, við mbl.is.
Mikilvægt að halda uppbyggingunni áfram
Hann telur mikilvægt að halda uppbyggingu áfram við höfnina og gera fólki um leið kleift að njóta hafnarsvæðisins og tengjast sögu þess.
„Nýja ljósið er falleg viðbót og góð ástæða til að ganga út á Norðurgarðinn í skammdeginu og horfa yfir fallega fjörðinn okkar. Nú stendur yfir dýpkun hafnarinnar og á næstu misserum heldur uppbyggingin áfram þegar nýja smábátahöfnin, Hamarshöfn, verður tekin í notkun.“
内容来自 Mbl.is - Innlendar fréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗
