Segir viðtal Daða stangast á við svör ráðuneytisins
Svör fjármálaráðuneytisins og Daða Már Kristóferssonar fjármálaráðherra koma ekki heim og saman.
Guðmundur Halldór Björnsson, framkvæmdastjóri markaðsdeildar Sýnar, segir þetta ljóst af svörum ráðuneytisins við eigin fyrirspurn um hugsanlega skattlagningu á erlenda tæknirisa.
Hann gagnrýnir seinagang ríkisstjórnarinnar í málinu. Guðmundur bendir á að það sé á aðgerðaráætlun stjórnvalda en að lítið hafi gerst þrátt fyrir það.
Þetta kemur fram í nýrri grein Guðmundar. Hann hefur áður gagnrýnt stjórnvöld fyrir seinaganginn.
Segir svör ráðuneytisins stangast á við yfirlýsingar Daða
Guðmundur bendir á viðtal Daða Más Kristóferssonar fjármálaráðherra á Vísi þar sem ráðherrann bregst raunar við umræðu eftir fyrri grein Guðmundar og segir málið vera til skoðunar í fjármálaráðuneytinu.
Í svarinu sem Guðmundur fékk frá ráðuneytinu við eigin fyrirspurn er því þó haldið fram að þessi mál hafi ekkert verið skoðuð. Þar sé bent á að frumvarp þess efnis sé ekki á þingmálaskrá og ekki unnt að segja til um hvort eða hvenær slíkt frumvarp yrði lagt fram.
Engin greining hafi farið fram á hugsanlegri skattlagninu á erlend tæknifyrirtæki. Þrátt fyrir það hafi Daði Már Kristófersson fjármálaráðherra haldið því fram að málið væri í skoðun.
Guðmundur vísar til orða Daða í viðtalinu:
„Þar sagði ráðherra að unnið hefði verið að því að fara yfir hvernig önnur ríki hefðu ráðist að vandanum. Hann sagði að aðgerðir ríkjanna hefðu skilað mjög mismunandi árangri og að verið væri „fyrst og fremst að kanna hvaða lausnir myndu henta hér“. Ráðherra bætti síðan við að ráðuneytið væri að vinna þetta í vetur.
Þarna er ráðherra að lýsa því að vinna sé í gangi. Farið hafi verið yfir reynslu annarra ríkja, árangur aðgerða þeirra metinn og verið sé að kanna hvaða lausnir henti Íslandi,“ segir Guðmundur og bætir við:
„En hvernig er hægt að komast að þeirri niðurstöðu að árangur annarra ríkja hafi verið „mjög mismunandi“ ef engin greining hefur farið fram og engin minnisblöð eða önnur gögn hafa verið unnin?“
Ekki geimvísindi að leggja fram fyrstu drög
Guðmundur vísar til orða Daða þegar hann segir að ráðherra hafi rétt í sér í því að vanda þurfi lagasetningu af þessu tagi.
„Það þýðir þó ekki að verkefnið þurfi að standa í stað svo mánuðum skipti, þegar vinnunni á þegar að vera lokið. Það eru engin geimvísindi að koma fram með fyrstu drög að frumvarpi um skattlagningu tæknirisanna.“
Logi Einarsson, menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra, hefur áður gefið þessum hugmyndum undir fótinn en eins og Guðmundur bendir á í greininni yrði einn helsti ávinningurinn af skattlagninunni að jafna út rekstrargrundvöllinn fyrir innlenda fjölmiðla.
„Erlendu tæknirisarnir taka nú þegar til sín um helming íslensks auglýsingafjár (um 15 milljarða árlega) en leggja ekki með sambærilegum hætti til íslensks samfélags og innlendir fjölmiðlar,“ segir Guðmunduri.
Þetta er haft eftir Loga Einarssyni í viðtali við Vísi í fyrra:
„Við erum búin að vera að horfa á þróun í rúman áratug sem hefur bara verið á einn veg, það er þessi alþjóðlega samkeppni og innlend tækni sem hefur gert erlendum fjölmiðlum erfitt fyrir. Við höfum frá því að ég tók við í ráðuneytinu fyrir ellefu mánuðum unnið sleitulaust að því að koma með mótvægisaðgerðir. Þetta mun enn frekar hvetja okkur til dáða, ég mun koma með stóran pakka af möguleikum og kynna fyrir ríkisstjórn í næstu viku.“
Fyrirmyndir til staðar í öðrum löndum
Guðmundur segir önnur lönd hafa sett fram sambærileg lög.
„Austurríki, Frakkland, Spánn, Bretland og fleiri ríki hafa þegar sett lög um sértæka skattlagningu á erlenda tæknirisa. Það liggja því fyrir raunverulegar fyrirmyndir um skattstofn, tekjumörk o.fl.
Ísland þarf að sjálfsögðu að velja útfærslu sem tekur mið af smæð markaðarins, alþjóðlegum skuldbindingum og EES-reglum. Stjórnvöld þurfa hins vegar ekki að byrja með autt blað.“
Skilafresturinn löngu liðinn
Guðmundur segir málið ekki þola neina bið. Innlendir fjölmiðlar eigi á brattann að sækja sem og íslenska tungumálið.
„Innlendir fjölmiðlar greiða laun og skatta á Íslandi, skapa störf og fjárfesta í íslenskri dagskrárgerð, fréttamennsku og menningu. Þegar auglýsingatekjurnar renna í auknum mæli til erlendra tæknifyrirtækja fara þær að stórum hluta úr landi og skilja lítið eftir sig í samfélaginu.
Þetta er því ekki eingöngu spurning um samkeppni eða skatttekjur ríkissjóðs. Þetta snýst einnig um framtíð íslenskrar fjölmiðlunar, íslenskrar tungu og getu okkar til að halda uppi sjálfstæðri og öflugri almenningsumræðu.
Hvenær koma þessar tillögur?“ spyr hann. Guðmundur segir að upprunalega hafi ráðuneytið átt að skila tillögum um málið í vor eða 6 mánuður eftir kynningu aðgerðaáætlunarinnar.
„Nú segir ráðherra að unnið verið að málinu í vetur. Komi málið ekki á þingmálaskrá fyrr en haustið 2027 verða liðnir um 20 mánuðir frá kynningu áætlunarinnar.
Það liggur á og skilafresturinn er löngu liðinn.“
内容来自 Mbl.is - Innlendar fréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗


