Alíslenskt mark í Belgíu
Anderlecht hafði betur gegn Genk, 2:0, á útivelli í efstu deild belgíska fótboltans í kvöld.
Vigdís Lilja Kristjánsdóttir og Andrea Rut Bjarnadóttir voru báðar í byrjunarliði Anderlecht og létu að sér kveða.
Vigdís kom Anderlecht yfir á 16. mínútu eftir stoðsendingu frá Andreu. Andrea lék allan leikinn og Vigdís fyrstu 80 mínúturnar.
Anderlect er á toppi deildarinnar með 21 stig eftir átta leiki.
内容来自 Mbl.is - Íþróttir - Fótbolti,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗