Sláandi myndband sýnir lögreglu skjóta háskólanema sem hafði verið haldi í gíslingu - „Þið eruð að fara mannavillt“

Háskólanema í Oregon var haldið í gíslingu af bróður hans sem vopnaður var hníf. Þegar lögregla kom á vettvang taldi háskólaneminn að hann væri öruggur. Hann slapp undan bróður sínum, henti frá sér hnífi sem hann hafði gripið til að verja sig, setti hendurnar fram til að gefa til kynna að hann væri óvopnaður og flýtti sér í átt til lögreglunnar sem þá skaut hann ítrekað.

Þetta sorglega mál kom upp í janúar þegar Maverick Lyon, háskólanemi og efnilegur lacrosse-leikmaður, var heima í Albany. Þar var einnig bróðir hans sem glímir við fíknisjúkdóm og er fallinn á bindindi. Bróðirinn tók upp hníf og ógnaði Maverick. Faðir þeirra sá þetta gerast á upptöku öryggismyndavélar á heimilinu og hringdi í lögregluna.

Maverick greip sjálfur hníf sem hann ætlaði að nota til að verja sig. Honum tókst að hlaupa út um bakdyrnar á heimilinu. Þar fyrir utan beið lögreglan. Maverick kastaði hnífnum frá sér en var þá skotinn að minnsta kosti fimm sinnum af lögreglumönnum sem beittu eins rafbyssu gegn honum. Maverick lifði af en þurfti að liggja í mánuð á sjúkrahúsi þar sem hann gekkst undir stórar aðgerðir.

Hann hefur nú stefnt lögreglunni enda telur hann sig hafa gert allt rétt. Hann fór að fyrirmælum lögreglu en var launað fyrir það með kúluregni.

Háskólaneminn hefur nú tapað hálfu lunga, milta og botnlanga. Eins þurfti að framkvæma umfangsmikla aðgerð til að endurbyggja meltingarveg hans.

Skotinn af þeim sem áttu að bjarga honum

Faðir hans segir í yfirlýsingu:

„Ég hef ávallt trúað því að þegar þú hringir í Neyðarlínuna þá sé hjálp á leiðinni. Mig óraði ekki fyrir því að með því að hringja ætti ég eftir að velta fyrir mér hvort sonur minn myndi lifa af. Fjölskylda okkar hefur gengið í gegnum nokkuð sem enginn ætti að upplifa. Ég hringdi í lögregluna þennan dag því ég vildi vernda Maverick en í staðinn fór það svo að fólkið sem ég bað um hjálp svipti hann næstum lífi.“

Daginn áður en atvikið átti sér stað höfðu foreldrar Maverick hringt í yfirvöld til að vara við því að eldri sonur þeirra, Dakota, væri að ógna fjölskyldunni eftir að hann féll á bindindi. Dakota var á skilorði og báðu foreldrar hans yfirvöld um að senda hann aftur í varðhald. Því var neitað. Daginn eftir tók Dakota yngri bróður sinn í gíslingu í fíkniefnavímu.

Lögreglan kom og umkringdi húsið. Þar gátu lögreglumenn séð bræðurna í gegnum gluggana. Maverick horfði á lögreglu og sagði lágt: „Hjálpið mér.“ Foreldrar bræðranna benda á að Dakota hafi verið góðkunningi lögreglunnar og því hefði lögreglan átt að þekkja bræðurna í sundur.

Lögregla sagði Maverick að koma út og losa sig við hnífinn. Maverick hlýddi en var engu að síður skotinn í brjóstið, bakið og andlitið.

Eftir kúluregnið, í stað þess að óska eftir sjúkrabíl, hafi lögregla öskrað á Maverick að rúlla sér á magann svo hægt væri að handjárna hann.

Dakota hefur nú verið dæmdur í sex ára fangelsi fyrir að frelsissvipta bróður sinn. Hann iðrast og segist óska þess helst að hann hefði verið skotinn.

Hrottalegt myndband

Myndband hefur nú verið birt af atvikinu en þar sést að Maverick stundi eftir að hann var skotinn: „Þið eruð að fara mannavillt – hann var með mig í gíslingu.“

Lögmaður Mavericks segir málið dæmisögu um afleiðingar þess þegar lögregla ruglast á geranda og þolanda.

Rannsókn á atvikinu lauk með þeirri niðurstöðu að lögreglumenn hefðu brugðist með réttum hætti við aðstæðum þar sem þeir töldu sér ógnað.

Police shot Maverick Lyon, 21, as he emerged from a North Albany home after his brother held him at knifepoint. Lyon survived and filed a federal lawsuit. The Benton County sheriff says Lyon held a separate knife at the door. Ring doorbell footage. https://t.co/4SLtlSgNip https://t.co/MOHcYG3KvM

— Wick Gone Wild (@WickGoneWILD) November 6, 2026

内容来自 DV.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅