Vil klárlega vera með á stórmótinu
Reynir Þór Stefánsson kom sterkur inn í íslenska landsliðið í handbolta er liðið vann 48:26-stórsigur á Úkraínu á miðvikudaginn var. Hann var markahæstur með sex mörk ásamt Ómari Inga Magnússyni og Bjarka Má Elíssyni.
„Ég fékk ekkert þannig skilaboð, önnur en að gera mitt besta,“ sagði Reynir við mbl.is spurður hvaða skilaboð hann hafi fengið frá þjálfarateyminu áður en hann kom inn á.
„Þetta var flott. Ég reyndi að koma inn á, nýta mínar mínútur, gera mitt besta og hjálpa liðinu,“ sagði hann.
Reynir hefur ekki spilað á stórmóti áður en hann kemur vel til greina fyrir HM í byrjun næsta árs eftir góða frammistöðu með Melsungen í Þýskalandi og landsliðinu sömuleiðis.
„Ég vil klárlega vera með á stórmótinu. Ég reyni að nýta tækifærin þegar þau gefast og við sjáum hvert það tekur mig,“ sagði hann.
Reynir er á sínu öðru tímabili sem atvinnumaður eftir góða frammistöðu hér heima með Fram. En hvernig hefur hann helst bætt sig?
„Það er góð spurning. Ég er búinn að bæta mig svolítið líkamlega og svo að komast inn í tempóið úti. Það er munurinn, ég er orðinn vanari hraðari leik,“ sagði hann.
Hann er ánægður með sína stöðu hjá Melsungen. „Það hafa verið meiðsli og ég hef fengið meiri spilatíma og komið mér betur og betur inn í þetta,“ sagði Reynir.
内容来自 Mbl.is - Íþróttir - Handbolti,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗