Þjálfaði áfram börn þrátt fyrir kynferðisofbeldi

FIFA úrskurðaði Bukabakwa í langt bann.

FIFA úrskurðaði Bukabakwa í langt bann. AFP/Fabrice Coffrini

FIFA hefur framlengt bann kongóska knattspyrnuþjálfarans Jonathans Bukabakwa til ársins 2048 eftir að hann hélt áfram að þjálfa börn á meðan hann sat af sér bann vegna kynferðisofbeldis, að því er fram kemur í The Guardian.

Bukabakwa var úrskurðaður í 20 ára bann árið 2023. FIFA hefur nú bætt fimm árum við og lagt á hann 15.000 dollara sekt til viðbótar.

Knattspyrnusamband Austur-Kongó og Racing Club Baki, þar sem hann hélt áfram að þjálfa, voru hvort um sig sektuð um 50.000 dollara fyrir að hafa ekki framfylgt upphaflega banninu.

Sambandinu er einnig gert að koma á fræðslu- og eftirlitsáætlun til að koma í veg fyrir frekari brot.

Bukabakwa hélt því fram að honum hefði ekki verið tilkynnt um bannið. Hann hefur neitað ásökunum um ofbeldið þrátt fyrir að hafa verið sakfelldur af kongóskum yfirvöldum.

内容来自 mbl.is - Íþróttafréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅