Fjöldi þekktra einstaklinga viðstaddir jarðarför Jesus á Spáni - „Skilur eftir sig tómarúm sem er ómögulegt að fylla“
Hundruð manna komu saman í bænum Navahermosa á Spáni í gær til að kveðja Jesus de Miguel, framherja Tenerife, sem lést eftir hörmulegt slys í knattspyrnuleik á mánudaginn.
De Miguel, sem var þrítugur, lenti í samstuði við Jesus Owono, markvörð Andorra, og fór í hjartastopp. Hann lést á sjúkrahúsi daginn eftir.
Fjölskylda, vinir og liðsfélagar De Miguel voru viðstaddir jarðarförina ásamt fjölda þekktra einstaklinga úr spænska fótboltanum. Þar á meðal voru Florentino Perez, forseti Real Madrid, og Luis de la Fuente, landsliðsþjálfari Spánar.
„Jesus skilur eftir sig tómarúm sem er ómögulegt að fylla, en líka dýrmætar minningar hjá okkur öllum sem vorum svo heppin að fá að deila lífinu með honum,“ segir fjölskylda hans í yfirlýsingu.
Þriggja daga sorg var lýst yfir í Navahermosa og voru fánar dregnir í hálfa stöng. De Miguel var borinn til grafar eftir athöfnina.
Leikjum Tenerife gegn Granada og Andorra gegn Mallorca um helgina hefur verið frestað. Þá ætlar Las Palmas, nágrannar og erkifjendur Tenerife, að leika í bláum og hvítum búningum á sunnudaginn til að heiðra minningu De Miguel.
Spænska lögreglan rannsakar enn tildrög andlátsins.
内容来自 DV.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗