Framarar upp fyrir ÍR
„Fram gerði góða ferð í Breiðholtið og sigraði ÍR, 29:22, í öðrum leik 8. umferðar úrvalsdeildar kvenna í handbolta.“
Með úrslitunum höfðu liðin sætaskipti. Fram er nú í fjórða sæti með tíu stig og ÍR í fimmta sæti með níu.
Staðan í hálfleik var 16:10, Fram í vil, og voru ÍR-ingar ekki líklegir til að jafna í seinni hálfleik.
Elínborg Katla Þorbjörnsdóttir skoraði átta mörk fyrir Fram og þær Katrín Anna Ásmundsdóttir, Kristrún Steinþórsdóttir og Lena Margrét Valdimarsdóttir fjögur hver.
Sara Dögg Hjaltadóttir skoraði sex mörk fyrir ÍR og Karen Tinna Demian gerði fimm.
内容来自 Mbl.is - Íþróttir - Handbolti,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗