Valsmenn áfram með fullt hús

Dwayne Lautier-Ogunleye lék vel.

Valur gerði góða ferð á Hornafjörð og sigraði nýliða Sindra, 86:73, á útivelli í úrvalsdeild karla í körfubolta í kvöld.

Valur er áfram með fullt hús stiga, eins og KR. Sindri er hins vegar án stiga eins og Njarðvík og Ármann.

Valur var með 48:44-forskot í hálfleik og voru Sindramenn ekki langt undan í þriðja leikhluta. Valsmenn voru hins vegar sterkari í fjórða og síðasta leikhlutanum og sigldu sigrinum í höfn.

Dwayne Lautier-Ogunleye skoraði 27 stig fyrir Val og Jelani Simmons bætti við 19 stigum.

Martins Meiers skoraði 26 stig fyrir Sindra og Gísli Þórarinn Hallsson bætti við 15 stigum.

Sindri - Valur 73:86

Ice Lagoon höllin, Bónus deild karla, 06. nóvember 2026.

Gangur leiksins:: 5:5, 15:11, 19:19, 19:25, 24:32, 27:39, 37:43, 44:48, 47:51, 49:57, 53:59, 56:61, 59:69, 59:75, 66:79, 73:86.

Sindri: Martins Meiers 26/5 fráköst, Gísli Þórarinn Hallsson 15, Kaleb Lamar Higgins 10/11 stoðsendingar, Branislav Vujadinovic 8/6 stoðsendingar, Birgir Leó Halldórsson 6, Craig Lecesne 5/9 fráköst, Magnús Dagur Svansson 3.

Fráköst: 20 í vörn, 5 í sókn.

Valur: Dwayne Lautier-Ogunleye 27/6 fráköst/5 stoðsendingar, Jelani Earl Simmons 19/4 fráköst, Kristófer Acox 10/7 fráköst, Kári Jónsson 9/6 fráköst/8 stoðsendingar, Hjálmar Stefánsson 8/7 fráköst, Pablo Cesar Bertone 6/6 fráköst, Atli Freyr Haraldsson Katrínarson 3, Ástþór Atli Svalason 2, Cedrick Taylor Bowen 2/6 fráköst.

Fráköst: 36 í vörn, 10 í sókn.

Dómarar: .

Áhorfendur: 232

内容来自 mbl.is - Íþróttafréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅