„Trump forseti ætti að íhuga það að frelsa Diddy“
Anthony Constantino situr við hlið fyrrum ráðgjafa Trumps, Roger Stone. Þeir hlusta á ræðu JD Vance á kosningafundi í Rome, New York, áður en kosið var til þingsins. AFP/Tom Brenner
Repúblikaninn Anthony Constantino, sem vakið hefur athygli fyrir að hafa rappað á og gefið út heila hljómplötu um Donald Trump Bandaríkjaforseta, vann sæti í þingkosningunum í New York-ríki í kosningunum í vikunni. Niðurstöðurnar komu í ljós í dag.
Constantino hefur kallað eftir því að Trump náði rapparann Diddy sem heitir réttu nafni Sean Combs og kemur frá New York.
Sæti Constantino tilheyrir fulltrúadeild þingsins sem repúblikanar töpuðu í kosningunum fyrir demókrötum en þar höfðu þeir meirihluta eftir kosningarnar þar áður. Hið sama er að segja um öldungadeildina en demókratar hafa nú meirihluta í báðum deildum.
Hrósaði sigri á föstudag
Demókratinn Blake Gendebien tapaði baráttunni fyrir Constantino, talning atkvæða leiddi það ekki í ljós fyrr en í dag.
Repúblikaninn hrósaði þó sigri strax á föstudaginn, á kjördag, þegar hann jós fúkyrðum yfir „vonda fréttamenn“ og vísaði sjónvarpsfréttamönnum á dyr um leið.
„Mér finnst að Trump forseti ætti að íhuga það að frelsa Diddy. Hann er sögulegur New York-búi sem gerði frábæra hluti fyrir New York-ríki,“ sagði Constantino.
Diddy var dæmdur til rúmlega fjögurra ára fangelsisvistar í fyrra fyrir lögbrot er snéru að vændi.
Rappplatan „Takk fyrir Trump forseti“
Constantino vakti fyrst athygli fjölmiðla árið 2024 þegar hann kom fyrir risavöxnu upplýstu skilti, þar sem á stóð: „Kjósið Trump“, ofan á húsnæði eigin fyrirtækis sem selur límmiða.
Í ár gaf hann síðan út plötu sem heitir Takk fyrir Trump forseti og inniheldur lög sem draga innblástur af bókum (Art of the Deal) og slagorðum forsetans en einnig ást hans á golfíþróttinni.
Þess má geta að Donald Trump Bandaríkjaforseti kemur frá New York eins og Constantino og Diddy.
内容来自 Mbl.is - Erlendar fréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗

