Alfreð Gíslason lét sína menn heyra það
Alfreð Gíslason, þjálfari karlaliðs Þýskalands í handbolta, gagnrýndi lið sitt þrátt fyrir 42:32-sigur á Belgum í undankeppni Evrópumótsins í Berlín í gær.
Í stöðunni 15:12 fyrir Þýskaland tók hann leikhlé og krafðist meiri ákefðar, að því er Sportschau greindi frá.
„Vandamál okkar er vörnin! Þeir komast alltof auðveldlega í gegn,“ sagði hann af mikilli innlifun við leikmenn sína.
„Takið ykkur saman í andlitinu. Þetta er ekki vináttuleikur, þetta er undankeppni Evrópumótsins!“
Þýskaland var með 22:18-forystu í hálfleik og stakk svo af með miklu betri frammistöðu í seinni hálfleik.
内容来自 mbl.is - Íþróttafréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗