Rannsaka þurfi hvort ótímabært got sé vegna innbrotsins
Matvælastofnun hefur gefið út yfirlýsingu þar sem stofnunin segir að ekki verði litið fram hjá því, komist hún að því að brotið hafi verið á dýrum.
Þar vísar hún til innbrots Einars Loga Péturssonar sem birti myndband af því í dag þegar hann braust inn í svínabú Stjörnugríss í sumar. Hann hefur játað að hafa gert það í tvígang.
MAST segir að stofnunin sinni eftirliti með svínabúum minnst einu sinni á ári. Einar gagnrýndi í myndbandinu aðbúnað dýranna þar sem sáust á þeim legusár og andvana grísir.
Matvælastofnun segir að rannsaka verði aðbúnað dýra sem kemur fram í myndbandinu og jafnframt hvort ótímabært got gyltnanna sem sjá megi í því sé hugsanlega afleiðing af innbrotinu.
Stofnunin segir ljóst að verknaðurinn, þar sem dýrum var sleppt út í vont veður, hafi valdið slösun og dauða á svínum.
Rannsaka þurfi það sem kemur fram í myndbandinu
„Á myndbandi því sem birt var af aðila sem braust inn á svínabú sjást dýr með sár.“
MAST segir að sár geti komið til í öllu dýrahaldi þó svo að ákvæði um aðbúnað dýranna sé fullnægt.
„En ef það gerist, er ótvíræð krafa yfirvalda að umráðamaður bregðist strax við með viðeigandi meðhöndlun og meðferð dýrsins og stofnunin fylgist ávallt með að slíkt sé gert.“
Bent er á að í myndbandinu sjáist jafnframt gjótandi gylta og dauðir gríslingar.
„Gríslingar geta fæðst andvana eins og hjá öllum tegundum. Þekkt er að utanaðkomandi stress getur valdið ótímabæru goti. Stofnunin var upplýst um fósturmissi og að fæðing hafi farið af stað hjá nokkrum gyltum í tengslum við innbrotin.“
Rannsaka þarf nánar það sem kemur fram á myndbandinu að mati MAST og sömuleiðis hvort ótímabært gotið sé mögulega afleiðing af innbrotinu.
„Stofnunin mun ekki horfa fram hjá ef brotið hefur verið á dýrum.“
„Aldrei réttlætanlegt“
MAST segir afar brýnt að taka fram að aðferðir og aðgerðir þeirra sem telji brotið á dýrum megi aldrei valda eða auka á þjáningar dýra.
„Í tilfelli innbrota á gyltubú í tvígang þá ollu því miður aðgerðir viðkomandi, meðal annars að hleypa dýrum úr stíum sínum og út úr húsunum í slæmu veðri, því að fjöldi dýra bæði slösuðust og drápust.
Það er aldrei réttlætanlegt með neinum hætti.“
Ábendingar teknar mjög alvarlega
MAST segist taka allar ábendingar um brot á dýravelferð alvarlega.
„Ef aðbúnaður eða umhirða dýra er talinn vera með þeim hætti að það brjóti á velferð þeirra, er ávallt mikilvægt að stofnuninni berist ábendingar um að svo sé.
Ábendingar um hugsanleg brot á velferð dýra eru án undantekningar teknar mjög alvarlega og strax fylgt eftir með rannsókn máls, og kröfum til umráðamanns dýra um úrbætur ef sannar reynast.“
Stofnunin segir eftirlit aldrei geta komið í veg fyrir brot að öllu leyti.
„Ekki frekar en eftirlit lögreglu geti hindrað með öllu að fólk aki of hratt, aki á rauðu ljósi, eða noti farsíma undir akstri.
Yfirvöld verða að treysta því að fólk fari eftir reglum og að umráðamenn dýra uppfylli skyldur sínar um aðbúnað og umhirðu dýra.“
Ábyrgðin á að vel sé farið með dýr hvíli á umráðamanni þess.
内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗
