Alfreð Gíslason lét sína menn heyra það

Alfreð Gíslason lét sína menn heyra það.

Alfreð Gíslason lét sína menn heyra það. AFP/Bo Amstrup

Alfreð Gíslason, þjálfari karlaliðs Þýskalands í handbolta, gagnrýndi lið sitt þrátt fyrir 42:32-sigur á Belgum í undankeppni Evrópumótsins í Berlín í gær.

Í stöðunni 15:12 fyrir Þýskaland tók hann leikhlé og krafðist meiri ákefðar, að því er Sportschau greindi frá.

„Vandamál okkar er vörnin! Þeir komast alltof auðveldlega í gegn,“ sagði hann af mikilli innlifun við leikmenn sína.

„Takið ykkur saman í andlitinu. Þetta er ekki vináttuleikur, þetta er undankeppni Evrópumótsins!“

Þýskaland var með 22:18-forystu í hálfleik og stakk svo af með miklu betri frammistöðu í seinni hálfleik.

内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅