Skilnaðardeilur fóru fyrir dóm því maðurinn taldi það bersýnilega ósanngjarnt að skipta eignum til helminga
Það er aldrei skemmtilegt að skilja, sérstaklega þegar deilt er um skiptingu eigna. Að meginreglu er eignum skipt í helminga eftir svokallaðri helmingaskiptareglu en í undantekningatilvikum má víkja frá henni. Maður nokkur taldi sig eiga rétt til slíkrar undanþágu því það yrði bersýnilega ósanngjarnt gagnvart honum að byggja á helmingaskiptareglu hvað varðaði fasteignir sem hann hafði keypt fyrir slysabætur. Landsréttur tók þó ekki undir með manninum.
Um var að ræða þrjár fasteignir sem maðurinn vildi halda utan skipta á grundvelli lagaákvæðis sem segir að ef um slysabætur er að ræða vegna varanlegrar örorku þá sé hægt að halda þeim utan skipta við skilnað. Hann rakti að árið 2003 fékk hann greiddar tæpar 11 milljónir vegna slyss sem olli 20 prósent örorku. Um fjórum árum síðar hafi hann keypt þrjár fasteignir á 4,8 milljónir. Þar með væru fasteignirnar í raun slysabæturnar og undanþegnar skiptum. Eignirnar voru nýttar sem eitt rými og metnar á 13 milljónir á síðasta ári.
Við skilnað geta slysabætur vegna varanlegrar örorku fallið utan skipta og það sama getur átt við um fasteign eða fasteignir sem voru keyptar fyrir bæturnar, svo lengi sem hægt er að rekja saman bætur og fasteign.
Maðurinn lýsti því í héraðsdómi að hann hafi notað bæturnar til að kaupa sumarbústað árið 2006. Ári síðar seldi hann bústaðinn og keypti áðurnefndar fasteignir fyrir söluandvirðið. Fyrir Landsrétti kom þó fram önnur skýring. Þar sagðist maðurinn hafa varið bótunum í endurbætur á húsi sem hann átti og svo notað hluta söluandvirðis hússins til að kaupa bústaðinn, en að mati Landsréttar var þessi skýring of seint fram komin svo hægt væri að byggja á henni. Taldi dómurinn eins að misræmi í málflutningi veikti málatilbúnaðinn.
Landsréttur benti svo á að þegar maðurinn gifti sig, árið 2017, hefðu 14 ár verið liðin síðan hann fékk bæturnar og 10 ár síðan hann keypti eignirnar þrjár. Hefði manninum verið í lófa lagið að gera kaupmála eða gefa konu sinni með öðrum hætti til kynna að hann teldi eignirnar ekki vera hluta af sameiginlegum fjárhag þeirra.
Til vara hafði maðurinn óskað eftir því að fá eignirnar að öllu leyti eða stærstum hluta í sinn hlut. Landsréttur taldi að honum hefði ekki tekist að sýna að helmingaskipti yrðu bersýnilega ósanngjörn, en maðurinn hafði meðal annars haldið því fram að hann hefði komið inn í hjónabandið með meira af eignum, verið með hærri tekjur og eins fengið föðurarf. Konan væri eins með fulla starfsorku en hann með skerta. Landsréttur gaf lítið fyrir þessi rök. Ekkert benti til þess að maðurinn væri óvinnufær en hins vegar benti allt til þess að hjónin hefðu í sínu 6 ára hjónabandi verið með sameiginlegan fjárhag.
Nefndi Landsréttur sérstaklega að þegar hjónin keyptu sína fyrstu fasteign saman lagði konan fram átta milljónir í útborgun sem hún hafði fengið við sölu á eigin eign. Maðurinn lagði fram 800 þúsund af söluandvirði vélsleða. Engu að síður áttu þau eignina til helminga frá upphafi.
Þar með gildir helmingaskiptareglan um skiptin og maðurinn þarf að greiða konunni samtals 1.860.000 í málskostnað.
内容来自 DV.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗