Voru til í að greiða hátt í tíu milljarða fyrir ungstirni Liverpool og gefast ekki upp
Bayern Munchen hefur mikinn áhuga á Rio Ngumoha, kantmanni Liverpool, og var félagið tilbúið að borga um 60 milljónir punda fyrir hann í sumar.
Samkvæmt þýska blaðamanninum Christian Falk ræddi Bayern við fulltrúa þessa 18 ára gamla Englendings, þar á meðal bróður hans, en Liverpool hafði engan áhuga á að selja.
Ngumoha kom til Liverpool frá Chelsea árið 2024 og hefur vakið mikla athygli fyrir frammistöðu sína. Hann fær sífellt fleiri tækifæri í aðalliðinu undir stjórn Andoni Iraola.
Bayern hefur þó ekki gefist upp og gæti reynt aftur næsta sumar. Liverpool vill hins vegar halda Ngumoha og er í viðræðum við hann um nýjan samning. Núverandi samningur hans gildir til ársins 2028.
内容来自 DV.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗