Eiginkonan flúði með börnin
Ellie Watkins, eiginkona enska knattspyrnumannsins Ollie Watkins, er snúin aftur til Englands með börnin þeirra tvö í kjölfar eldflaugaárása í Sádi-Arabíu, samkvæmt Daily Mirror.
Fjölskyldan flutti þangað eftir að framherjinn gekk til liðs við Al Hilal frá Aston Villa í sumar.
„Það eru átök og ýmislegt í gangi í Sádi-Arabíu og við ákváðum í raun bara að vera hér þangað til ástandið róast,“ sagði hún á TikTok.
„Mér fannst ég þurfa að gera þetta fyrir börnin svo að þau búi við eitthvert eðlilegt ástand þangað til við getum farið aftur út og verið öll saman.“
Ekkert bendir til þess að framherjinn muni fylgja fjölskyldu sinni til heimalandsins í bráð.
内容来自 Mbl.is - Íþróttir - Fótbolti,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗/frimg/1/69/4/1690417.jpg)